Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. nóvember 2019 Forsætisráðuneytið

Endurnýjun í úrskurðarnefnd um upplýsingamál

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur skipað nýja nefndarmenn í úrskurðarnefnd um upplýsingamál í samræmi við 1. mgr. 21. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Skipunartími nefndarinnar er frá 19. nóvember 2019 til 19. nóvember 2023.

Nefndina skipa þau Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, Kjartan Bjarni Björgvinsson, héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, og Sigríður Árnadóttir, aðstoðarsaksóknari hjá héraðssaksóknara og fyrrverandi fréttamaður. Hafsteinn Þór verður formaður nefndarinnar en hann hefur gegnt formennsku frá 1. apríl 2013. Kjartan Bjarni verður varaformaður nefndarinnar. Elín Ósk Helgadóttir lögfræðingur, Sigurveig Jónsdóttir, fyrrverandi fréttamaður og Símon Sigvaldason, héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur eru skipuð varamenn í nefndinni.

Friðgeir Björnsson fyrrverandi dómstjóri lætur nú af störfum í nefndinni en hann hefur setið í henni frá 1. janúar 2005.

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál er starfrækt á grundvelli V. kafla upplýsingalaga nr. 140/2012 til að leysa úr ágreiningsmálum um aðgang almennings að upplýsingum hjá stjórnvöldum. Nefndin er sjálfstæð og óháð stjórnsýslunefnd sem skipað er til hliðar við hið almenna stjórnkerfi ríkis og sveitarfélaga. Forsætisráðuneytið veitir nefndinni ritara- og skrifstofuþjónustu.

  • Hafsteinn Þór Hauksson - mynd
  • Kjartan Bjarni Björgvinsson - mynd
  • Sigríður Árnadóttir - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum