Hoppa yfir valmynd

Frétt

19. nóvember 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Vel heppnað heilbrigðisþing að baki

Göran Hermerén - myndHeilbrigðisráðuneyti - /ME

Fjölmennt var á heilbrigðisþingi um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu síðastliðinn föstudag og margir fylgdust með þinginu í beinni útsendingu á vefnum. Hægt er að nálgast upptöku af þinginu í heild, glærur fyrirlesara hafa verið gerðar aðgengilegar og sömuleiðis fjöldi ljósmynda sem teknar voru af fyrirlesurum og gestum þingsins meðan á því stóð.

Á fjórða hundrað manns skráðu sig á þingið og komust færri að en vildu. Markmiðið með þinginu var að skapa vettvang fyrir kynningu og umræður um helstu gildi og siðferðilegar áherslur sem leggja beri til grundvallar við forgangsröðun heilbrigðiskerfinu. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir afar mikilvægt að um þessi mál ríki almenn sátt í samfélaginu og að fólk sé meðvitað og upplýst um hvað forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu felur í sér og hvers vegna forgangsröðun sé óhjákvæmileg.

Ráðherra segir þingið hafa tekist vel og að vönduð og fjölbreytt erindi fyrirlesara á þinginu hafi varpað skýru ljósi á viðfangsefnið og ólíkar hliðar þess. Eins hafi verið afar gagnlegt að sjá hvaða spurningar brunnu helst á þeim sem fylgdust með þinginu og sjá þar ákveðinn samhljóm þar sem m.a. áhersla á jafnræði, mannhelgi og virðingu vegur þungt. „Ég er afar þakklát öllum þeim sem tóku þátt í þinginu eða komu að undirbúningi þess eða skipulagningu á einhvern hátt. Það tókst afar vel til og nú liggur fyrir mikið efni og góður grunnur að byggja á við mótun tillögu til þingsályktunar um þetta vandasama viðfangsefni.“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Heilbrigðisráðherra stóð einnig fyrir heilbrigðisþingi í nóvember í fyrra þar sem fjallað var um drög að nýrri heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Eftir frekari úrvinnslu voru stefnudrögin birt til umsagnar og í júní 2019 varð heilbrigðisstefna að veruleika með þingsályktun sem samþykkt var á Alþingi í júní 2019. Forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu eru meðal umfjöllunarefna heilbrigðisstefnunnar þar sem sett er fram það stefnumið að: „Almenn sátt ríki um þær siðferðilegu meginreglur sem liggi til grundvallar forgangs­röðun og ákvörðunum í heilbrigðiskerfinu og stöðug umræða verði um siðferðileg leiðarljós.

Hér að neðan eru myndir frá þinginu
© Heilbrigðisráðuneytið -/ME 

  • Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra - mynd
  • Vel heppnað heilbrigðisþing að baki - mynd úr myndasafni númer 2
  • Jóna Þórey Pétursdóttir - mynd
  • Vel heppnað heilbrigðisþing að baki - mynd úr myndasafni númer 4
  • Héðinn Unnsteinsson - mynd
  • Emil Thoroddsen - mynd
  • Henry Alexander Henrysson - mynd
  • Vel heppnað heilbrigðisþing að baki - mynd úr myndasafni númer 8
  • Henry Alexander Henrysson - mynd
  • Vilhjálmur Árnason - mynd
  • Vel heppnað heilbrigðisþing að baki - mynd úr myndasafni númer 11
  • Vel heppnað heilbrigðisþing að baki - mynd úr myndasafni númer 12
  • Hildigunnur Svavarsdóttir - mynd
  • Tryggvi Þorgeirsson - mynd
  • Davíð O. Arnar - mynd
  • Tinna Laufey Ásgeirsdóttir - mynd
  • Vel heppnað heilbrigðisþing að baki - mynd úr myndasafni númer 17
  • Dóra Guðrún Guðmundsdóttir - mynd
  • Páll Matthíasson - mynd
  • Páll Matthíasson - mynd
  • Sunna Snædal - mynd
  • Fyrirspurnir þinggesta - mynd
  • Sunna Snædal - mynd
  • Vel heppnað heilbrigðisþing að baki - mynd úr myndasafni númer 24
  • Vel heppnað heilbrigðisþing að baki - mynd úr myndasafni númer 25
  • Vel heppnað heilbrigðisþing að baki - mynd úr myndasafni númer 26
  • Pallborð - mynd
  • Pallborð - mynd
  • Orðaský - mynd
  • Gylfi Ólafsson - mynd
  • Vel heppnað heilbrigðisþing að baki - mynd úr myndasafni númer 31
  • Vel heppnað heilbrigðisþing að baki - mynd úr myndasafni númer 32
  • Vel heppnað heilbrigðisþing að baki - mynd úr myndasafni númer 33
  • Guðlaug Rakel Jónsdóttir - mynd
  • Vel heppnað heilbrigðisþing að baki - mynd úr myndasafni númer 35
  • Óskar Reykdalsson - mynd
  • Alma D. Möller - mynd
  • Vel heppnað heilbrigðisþing að baki - mynd úr myndasafni númer 38
  • Vel heppnað heilbrigðisþing að baki - mynd úr myndasafni númer 39
  • Vel heppnað heilbrigðisþing að baki - mynd úr myndasafni númer 40

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum