Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. desember 2019 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Loftslagsráðstefnu SÞ lokið eftir langar viðræður

Carolina Schmidt umhverfisráðherra Chile og forseti COP25 - mynd
Tuttugasta og fimmta aðildarríkjafundi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna lauk eftir hádegi í gær eftir langar og strangar samningaviðræður, hálfum öðrum sólarhring seinna en gert var ráð fyrir.

Þrátt fyrir góðan ásetning og ítrekaðar tilraunir forseta þingsins, tókst ekki að ná samkomulagi um fyrirkomulag og regluverk um kolefnismarkaði, í samræmi við 6. gr. Parísarsamningsins, líkt og vonir stóðu til. Áframhaldandi vinnu var vísað til undirnefndar samningsins sem fundar næst í júní í sumar.
Margir fundarmenn lýstu yfir vonbrigðum með að samningar skyldu ekki hafa náðst, en þó voru flestir sammála um að mikið hefði áunnist í viðræðunum. Næstu skref munu byggja á þeirri vinnu sem nú hefur farið fram.

Ekki tókst heldur að samþykkja reglur um bókhald og skýrslugjöf, sem eru einnig mikilvægir þættir í innleiðingu Parísarsamningsins. Þá náðist ekki samkomulag um langtímafjármögnun loftslagsmála og mun umræða um þau mál því færast til næsta fundar.

Tími breytinga var yfirskrift fundarins og lagði forseti þingsins, Carolina Schmidt, sem einnig er umhverfisráðherra Síle, mikla áherslu á að nauðsynlegt væri að ná góðri niðurstöðu og sýna aukinn metnað. Allra augu væru á umræðunum og það væri til marks um mikilvægi þeirra.

Önnur mál sem mikið voru rædd var orðalag í sameiginlegri ákvörðun fundarins, þar sem meðal annars er talað um mikilvægi þess að leggja aukinn metnað í loftslagsmál og að taka mið af vísindum. Síle lagði mikla áherslu á málefni hafsins í sinni formennsku þetta árið og því var ánægjulegt að í fyrsta sinn skyldi í lokaákvörðun aðildaríkjafundarins vísað í mikilvægi þess að tengja málefni hafsins við loftslagsmálin.

Ungmenni hafa í auknum mæli gert sig gildandi í loftslagsumræðunni og því ákvað umhverfis- og auðlindaráðuneytið að styrkja fulltrúa frá samtökum ungmennahreyfinga til þátttöku í fundinum; Aðalbjörgu Egilsdóttur, sem var kosin af félögum sínum til þess að taka þetta verkefni að sér.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson tók þátt í ráðherradögum fundarins fyrr í vikunni. Hann flutti meðal annars erindi um súrnun sjávar og áhrif loftslagsbreytinga á jökla. Einnig flutti ráðherra ávarp fyrir hönd Íslands, þar sem hann lagði áherslu á að nálgast þurfi loftslagsvána með hugarfari þess sem vill og getur. „Það eru vonbrigði að ekki náðist að klára þau mikilvægu verkefni sem lágu fyrir fundinum. Það er brýnt að það takist á næsta ári. Að mínu mati þurfa ríki heims að taka á loftslagsmálum af mun meiri festu og ábyrgð. Ég fagna hins vegar því að málefnum hafsins er nú lyft upp í fyrsta sinn í lokaákvörðun fundarins.“

Næsti aðildarríkjafundur (COP26) verður haldinn í Glasgow dagana 9.-19. nóvember 2020, undir formennsku Breta, í samvinnu við Ítali. Á þeim fundi þarf að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í Madríd á sunnudag, auk þess sem ríkin munu þurfa að kynna hert markmið í samræmi við ákvæði Parísarsamningsins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum