Hoppa yfir valmynd

Frétt

17. desember 2019 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Afgreiðsla mála hjá kærunefnd útboðsmála flyst til yfirskattanefndar

Afgreiðsla mála hjá kærunefnd útboðsmála flyst 1. janúar 2020 úr fjármála- og efnahagsráðuneytinu til yfirskattanefndar.

Hlutverk kærunefndar útboðsmála er að leysa með skjótum og óhlutdrægum hætti úr kærum fyrirtækja vegna ætlaðra brota á lögum um opinber innkaup og reglum settum samkvæmt þeim. Þar á meðal um almenn innkaup opinberra aðila, innkaup á sviði varnar- og öryggismála, innkaup opinberra aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu og gerð sérleyfissamninga.

Eftir 1. janúar 2020 annast yfirskattanefnd afgreiðslu kærunefndarinnar og móttöku skjala vegna kæra og er vísað á eftirfarandi heimilis- og netfang vegna gagna og upplýsinga sem send eru nefndinni:

Yfirskattanefnd
Borgartúni 21
105 Reykjavík

[email protected]


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum