Hoppa yfir valmynd

Frétt

18. desember 2019 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2020

Þriðjudaginn 17. desember 2019 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2020 sbr. reglugerð nr. 1076/2019.

Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 2.800 stk., á meðalverðinu 118 kr./stk.  Hæsta boð var 150 kr./stk. en lægsta boð var 75 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.200 stk. á meðalverðinu 130 kr./stk.

Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9093) samtals 3.500 stk., á meðalverðinu 131 kr./stk.  Hæsta boð var 150 kr./stk. en lægsta boð var 99 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 3.000 stk. á meðalverðinu 137 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á rósum (0603.1100) samtals 5.000 stk., á meðalverðinu 56 kr./stk.  Hæsta boð var 60 kr./stk. en lægsta boð var 51 kr./stk. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 2.000 stk. á meðalverðinu 60 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 15.000 stk., á meðalverðinu 43 kr./stk.  Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 46 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 281.250 stk. á meðalverðinu 30 kr./stk.  Hæsta boð var 60 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 166.250 stk. á meðalverðinu 40 kr./stk.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2020

Magn (stk) 

Tilboðsgjafi

2.000

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

200

Grænn markaður ehf

Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2020

Magn (stk) 

Tilboðsgjafi

2.500

Garðheimar–Gróðurvörur ehf

500

Grænn markaður ehf

Rósir janúar – júní 2020

Magn (stk) 

Tilboðsgjafi

2.000

Garðheimar–Gróðurvörur ehf

Tryggðablóm janúar – júní 2020

Magn (stk) 

Tilboðsgjafi

1.000

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

8.000

Samasem ehf

(Annars)  afskorin blóm janúar – júní 2020

Magn (stk) 

Tilboðsgjafi

14.250

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

20.000

Grænn markaður ehf

132.000

Samasem ehf

Reykjavík, 18. desember 2019  

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum