Hoppa yfir valmynd

Frétt

19. desember 2019 Innviðaráðuneytið

Byggðamálaráð ályktar um mikilvægi þess að treysta raforkukerfi landsins

Í ljósi atburða síðustu daga þar sem stórir hlutar landsins voru án rafmagns og fjarskipta var eftirfarandi ályktun einróma var samþykkt í byggðamálaráði í gær, miðvikudaginn 18. desember. 

„Byggðamálaráð fagnar yfirlýsingu byggðamálaráðherra um mikilvægi þess að byggja upp og treysta raforkukerfið á Íslandi til að tryggja öryggi allra landsmanna. Að öðru leyti tekur byggðamálaráð undir ályktun stjórnar Byggðastofnunar frá því 17. desember 2019 þar sem segir: 

„Í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018–2024 er lýst þeirri framtíðarsýn að Ísland verði í fararbroddi með nútímainnviði, framsækna þjónustu, verðmætasköpun, jöfn lífsgæði og öflug sveitarfélög sem geti annast staðbundin verkefni og veitt íbúum hagkvæma og góða þjónustu með markmið sjálfbærrar þróunar að leiðarljósi. Í öllum landshlutum verði blómlegar byggðir og öflugir byggðakjarnar þar sem stuðlað verði að bættum lífskjörum landsmanna með sem jöfnustu aðgengi að grunnþjónustu og atvinnutækifærum óháð efnahag og búsetu.

Öryggi í raforkuflutningum og fjarskiptum er ein grunnforsenda til að þessu markmiði verði náð og flutnings- og dreifikerfi raforku þarf að mæta þörfum atvinnulífs og almennings alls staðar á landinu hvað varðar flutningsgetu og öryggi við afhendingu. Samhliða þarf fjarskipta- og samskiptamiðlun að vera tryggð um land allt. Atburðir síðustu daga, þegar stórir hlutar landsins voru án rafmagns og fjarskipta, sýna að miklir veikleikar eru í þessum öryggisinnviðum og að stór hluti íbúa landsbyggðanna býr við mikið óöryggi að þessu leyti. Það er með öllu óásættanlegt og ógnar búsetuskilyrðum víða um land.“

Byggðamálaráð hvetur ríkisstjórn Íslands til að beita sér með afgerandi hætti fyrir því að tryggja afhendingaröryggi raforku um land allt.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum