Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. desember 2019 Innviðaráðuneytið

Forsendur framlaga nýjung í upplýsingagátt Jöfnunarsjóðs

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Guðný Sverrisdóttir, formaður ráðgjafarnefndarinnar opna upplýsingagáttina - mynd

Nýjungar hafa verið kynntar í upplýsingagátt Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem veitir aðgang að tölfræðiupplýsingum um framlög sjóðsins. Helsta nýjungin felst í því að nú er hægt að skoða forsendur sem liggja til grundvallar við útreikning framlaga. Breytingarnar voru kynntar á fundi ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs með Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Í upplýsingagáttinni er hægt að skoða og bera saman framlög sjóðsins eftir landsvæðum og sveitarfélögum allt aftur til ársins 2013. Þegar smellt er á nýjan hnapp („Forsendur framlaga“) má skoða öll helstu gögn sem liggja á bak við framlög sjóðsins, ásamt myndrænni framsetningu og þróun frá árinu 2013. Aukinheldur má sjá skýringar og upplýsingar um gögnin við hvert framlag.

Upplýsingagáttin byggir á forritinu PowerBI sem gerir notendum kleift að skoða gögn á gagnvirkan, sjónrænan og aðgengilegan hátt. Markmiðið er að gera framlögum Jöfnunarsjóðs skil á aðgengilegri máta en áður og auðvelda notendum að gera samanburð og afla sér greinargóðra upplýsinga um málaflokkinn. 

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Guðný Sverrisdóttir, formaður ráðgjafarnefndarinnar opnuðu upplýsingagáttina eftir breytingar á henni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum