Hoppa yfir valmynd

Frétt

3. janúar 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðherra kynnir Hálendisþjóðgarð á fundum um allt land

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, fer á næstu dögum í hringferð um landið og kynnir áform um stofnun Hálendisþjóðgarðs, en frumvarp þar að lútandi er nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

Frumvarpið tekur til stofnunar þjóðgarðs á miðhálendi Íslands, á landsvæði sem er í sameign þjóðarinnar; þjóðlendum og friðlýstum svæðum innan miðhálendisins. Þetta er í samræmi við tillögur nefndar fulltrúa allra þingflokka og stjórnvalda, bæði ríkis og sveitarfélaga, sem vann að undirbúningi stofnunar þjóðgarðsins.

Á fundunum mun ráðherra m.a. fara yfir forsendur og markmið með stofnun Hálendisþjóðgarðs og kynna helstu atriði frumvarpsins.

Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:

Þriðjudagurinn 7. janúar

  • 13:30 Borgarnes, Hótel Hamar
  • 17:30 Húnavatnshreppur, Húnavallaskóli

Miðvikudagurinn 8. janúar

  • 11:00 Reykjadalur, Félagsheimilið Breiðumýri
  • 18:00 Egilsstaðir, Hótel Hérað

Fimmtudagurinn 9. janúar

  • 13:00 Öræfi, Hótel Skaftafell í Freysnesi
  • 18:00 Hvolsvöllur, Midgard

Mánudagurinn 13. janúar

  • 17:00 Reykjavík, Veröld – hús Vigdísar, fyrirlestrasalur. Fundurinn verður í beinu streymi á netinu.

Fundirnir eru öllum opnir – verið velkomin.

Nánar um drög að frumvarpi um Hálendisþjóðgarð

Spurt og svarað um Hálendisþjóðgarð

Frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð í samráðsgátt stjórnvalda


Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni
15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum