Hoppa yfir valmynd

Frétt

7. janúar 2020 Heilbrigðisráðuneytið

Reglugerðarbreyting í þágu sykursjúkra

Frá fundi í heilbrigðisráðuneytinu þar sem þessar breytingar og fleiri til lækkunar á greiðsluþátttöku sjúklinga voru kynntar - myndMynd: Heilbrigðisráðuneyti -/ME

Reglugerð heilbrigðisráðherra sem kveður á um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í nýjum búnaði fyrir sykursjúka með insúlínháða sykursýki tók gildi 1. janúar síðastliðinn. Búnaðurinn hefur til þessa ekki staðið til boða sjúklingum með sykursýki hér á landi. Með reglugerðinni er einnig kveðið á um aukinn rétt fólks sem er nýgreint með sykursýki til niðurgreiddra blóðstrimla til blóðsykursmælinga.

Sérstakir nemar sem fylgjast með blóðsykri í gegnum húð og notendur bera á sér að staðaldri eru nýlegur búnaður sem hentar vel fólki með insúlínháða sykursýki. Nokkur reynsla er komin af notkun búnaðarins erlendis þar sem notkun hans hefur breiðst hratt út og eftirspurn er mikil. Í Svíþjóð nota til að mynda um 75% einstaklinga með sykursýki 1 þennan búnað.

Tæknin er hagkvæm og notendavæn og ýtir undir heilsulæsi notenda. Þeir sem eru með búnaðinn geta hlaðið smáforriti í símann sinn sem fylgist með og heldur utan um allar mælingar. Þessum upplýsingum er hægt að deila með heilbrigðisstarfsfólki á einfaldan hátt og nýta þannig kosti fjarheilbrigðisþjónustu fyrir ráðgjöf og leiðbeiningar.

Sjúkratryggingar Íslands hafa um nokkurt skeið reynt að ná samningi um að kaupa búnaðinn beint frá framleiðanda en smæð íslensks markaðar reynst fyrirstaða. Áætlað er að hér á landi séu um 650 manns sem geti og muni nýta sér búnaðinn á næstu tveimur árum og hefur Sjúkratryggingum Íslands nú tekist að afla búnaðarins fyrir notendur hér á landi.

Með reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1155/2013 um styrki vegna hjálpartækja sem tók gildi 1. janúar síðastliðinn er niðurgreiðsla vegna þessa nýja búnaðar tryggð. Reglugerðin kveður jafnframt á um breytingar í þágu þeirra sem ekki eiga kost á að nýta sér umrædda blóðsykurnema. Sömu reglur skulu gilda nú um kostnaðarþátttöku vegna búnaðar fyrir fólk með sykursýki hvort sem um er að ræða börn, fullorðna eða lífeyrisþega. Með reglugerðinni er kveðið á um að fólk sem er nýgreint með sykursýki II fái niðurgreidda fleiri blóðstrimla til blóðsykursmælinga fyrsta árið eftir greiningu, þar sem talið er mikilvægt að þeir geti mælt blóðsykurinn oftar, allt að fjórum sinnum á dag til að byrja með.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum