Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. janúar 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra - Um það sem öllu máli skiptir

Eftirfarandi grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra birtist í Mannlífi 11. janúar 2020.

 

Um það sem öllu máli skiptir

Í upphafi nýs árs eru umhverfismálin ofar á baugi en nokkru sinni fyrr. Og ekki seinna vænna, segi ég. Á árinu sem leið vorum við ítrekað minnt á alvarleika loftslagsbreytinga og til að mynda lauk árinu með átakanlegum gróðureldum í Ástralíu, sem enn standa yfir.

Áhrif loftslagsbreytinga virðast kannski stundum svolítið fjarlæg okkur Íslendingum. En við sjáum hvað er að gerast annarsstaðar og þó að á Íslandi geysi ekki gróðureldar í öllum sýslum, þá hopa og rýrna jöklarnir okkar stöðugt og súrnun sjávar er staðreynd.

Við stöndum nú frammi fyrir fordæmalausum áskorunum í loftslagsmálum og eigum engra annarra kosta völ en að takast á við þær af hugrekki og skynsemi. Þjóðir heims þurfa að standa saman og þær þurfa að gera meira og betur en hingað til.

Loftslagsmál eru eðli málsins samkvæmt eitt af helstu áherslumálum ríkisstjórnarinnar. Við stefnum að 40% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda árið 2030 og kolefnishlutleysi árið 2040. Ef þessi markmið eiga að nást þurfa allir kimar samfélagsins að róa í sömu átt.
Okkur hættir stundum til að benda hvert á annað; einstaklingar benda á fyrirtæki og fyrirtæki benda á stjórnvöld. En svoleiðis samkvæmisleikir stoða lítið. Við þurfum að taka höndum saman og ráðast að vandanum úr öllum áttum. Í sameiningu.

Haustið 2018 setti ríkisstjórnin fram fyrstu fjármögnuðu loftslagsáætlun Íslands og síðan þá hefur hverri aðgerðinni á fætur annarri verið hrint í framkvæmd. Til að mynda er á næstu fjórum árum gert ráð fyrir að kolefnisbinding með landgræðslu og skógrækt tvöfaldist og endurheimt votlendis tífaldist. Við höfum hækkað kolefnisgjald á jarðefnaeldsneyti og sett nýja græna skatta til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Við höfum styrkt uppsetningu hraðhleðslustöðva og vonir standa til að þeim fjölgi um 40% á næstunni en það mun auðvelda fólki stórlega að fara leiða sinna á vistvænni hátt. Við höfum komið á fót Loftslagssjóði, sem er ætlað að styðja við nýsköpun og fræðslu á sviði loftslagsmála, og aukið fjármagn til umhverfisfræðslu í skólum með sérstakri áherslu á loftslagsmál. Svo eitthvað sé nefnt. Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum þarf að sjálfsögðu að vera í sífelldri endurskoðun og á þessu ári verður gefin út uppfærð og ydduð útgáfa af henni.

En við munum líka þurfa að aðlaga okkur að breyttum veruleika í heimi þar sem sjávarborð er hærra, úrkomumynstur breytt og öfgar í veðurfari tíðari. Þess vegna vinnur Loftslagsráð nú að minni beiðni undirbúningsvinnu fyrir stjórnvöld vegna aðlögunar íslensks samfélags að loftslagsbreytingum og í framhaldinu munu stjórnvöld vinna aðlögunaráætlun líkt og gert hefur verið fyrir mörg ríki.

Á þessu ári liggur líka fyrir að ríki heims setji sér ný markmið í loftslagsmálum á grundvelli Parísarsamningsins. Við Íslendingar munum ekki láta okkar eftir liggja.
Því það skiptir öllu máli.
 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum