Hoppa yfir valmynd

Frétt

19. janúar 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra - Hálendisþjóðgarður yrði einstakur á heimsvísu

Eftirfarandi grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra birtist í Vikudegi 19. janúar 2020.

 

Hálendisþjóðgarður yrði einstakur á heimsvísu

Miðhálendi Íslands hefur að geyma ein stærstu óbyggðu víðerni álfunnar og magnaða náttúru sem fáa lætur ósnortna. Með stofnun Hálendisþjóðgarðs getum við verndað þessa einstöku náttúru, ásamt því að tryggja aðgengi útivistarfólks og sjálfbæra nýtingu auðlinda. Þar fyrir utan mun þjóðgarðurinn skapa opinber störf á landsbyggðinni og búa nærliggjandi byggðum margvísleg tækifæri til atvinnusköpunar. Hálendisþjóðgarður yrði stærsti þjóðgarður í Evrópu og einstakur á heimsvísu.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að stofna skuli þjóðgarð á miðhálendi Íslands, en allt frá árinu 2016 hefur verið unnið að þróun þessarar hugmyndar á vegum stjórnvalda í nánu samstarfi við fjölmarga hagsmunaaðila.

Hvaða svæði nær þjóðgarðurinn yfir?

Drög að lagafrumvarpi um Hálendisþjóðgarð voru sett í samráðsgátt stjórnvalda fyrir jól. Frumvarpið byggir á viðamikilli vinnu nefndar sem í sátu fulltrúar allra þingflokka á Alþingi, Sambands íslenskra sveitarfélaga, umhverfis- og auðlindaráðuneytis og forsætisráðuneytis. Nefndin lagði til að mörk þjóðgarðsins miðist við landsvæði sem eru í sameign þjóðarinnar – það er þjóðlendur og svæði sem þegar eru friðlýst innan miðhálendisins.

Um 30% af flatarmáli Íslands yrði þannig innan þjóðgarðsins. Um helmingur þess landsvæðis er nú þegar friðlýstur.

Útivist, nytjar og endurheimt

Hálendisþjóðgarður hefur ekki í för með sér að miðhálendinu verði lokað eins og stundum er haldið fram. Síður en svo. Eitt af markmiðum þjóðgarðsins er einmitt að auðvelda almenningi að kynnast og njóta náttúru svæðisins, menningu þess og sögu.

Hefðbundnar nytjar verða einnig áfram leyfðar innan þjóðgarðsins, svo sem búfjárbeit, fuglaveiði, hreindýraveiði og veiði í ám og vötnum. Gerð er krafa um sjálfbæra nýtingu þessara auðlinda.

Gert er ráð fyrir að endurheimt raskaðra vistkerfa verði eitt af markmiðum þjóðgarðsins og að m.a. verði unnið að henni í samvinnu og samstarfi við félög og sjálfboðaliða á viðkomandi svæðum, ekki síst bændur sem víða hafa unnið mikilvægt starf við landgræðslu á hálendinu.

Hvað með virkjanir?

Virkjanir hafa verið bitbein stjórnmálanna og samfélagslegrar umræðu í langan tíma. Með frumvarpsdrögum um Hálendisþjóðgarð er gerð tilraun til þess að sætta sjónarmið um virkjanir inni á hálendinu.

Lagt er til að þær leikreglur sem Alþingi setti með lögum um vernd og orkunýtingu landsvæða (öðru nafni rammaáætlun) verði virtar, en einnig tekið tillit til þeirra leikreglna sem þjóðgarður skapar. Hægt verði að meta þær virkjunarhugmyndir inni á miðhálendinu sem þegar hafa komið fram og eru til skoðunar í óafgreiddum þriðja áfanga rammaáætlunar. Hvort af þeim virkjunum verður ræðst hins vegar af strangari kröfum en samkvæmt núgildandi löggjöf, enda svæðin innan þjóðgarðs. Meðal annars verði horft til þess hvort virkjunarhugmynd sé á röskuðu eða óröskuðu svæði.

Nýjar virkjunarhugmyndir utan þriðja áfanga rammaáætlunar verði hins vegar ekki teknar til skoðunar og þannig dregin lína í sandinn við þann áfanga áætlunarinnar.

Hvernig verður þjóðgarðinum stjórnað?

Stjórnskipulag þjóðgarðsins felur í sér að ríki, sveitarfélög og hagaðilar komi sameiginlega að stefnumótun og stjórnun þjóðgarðsins; að meirihluti stjórnarmanna verði kjörnir fulltrúar þeirra sveitarfélaga sem ná inn á miðhálendið en að í stjórninni verði einnig fulltrúar ríkis, ferðaþjónustu, umhverfisverndar- og útivistarsamtaka og Bændasamtaka Íslands. Gert er ráð fyrir að þjóðgarðinum verði skipt upp í sex rekstrarsvæði og svokölluð umdæmisráð fari með stefnumótun hvers svæðis. Fulltrúar sveitarfélaga verða einnig í meirihluta í umdæmisráðum og aðkoma heimafólks að stjórnun þjóðgarðsins verður því rík. Ný stofnun, Þjóðgarðastofnun, myndi sinna daglegum rekstri og þjónusta svæðin.

Það stendur ekki til að fjarstýra þjóðgarðinum frá Reykjavík, heldur dreifa stjórnun hans og umsýslu um rekstrarsvæðin og að þar verði starfsstöðvum komið upp.

Hvað með skipulagsvaldið?

Með Hálendisþjóðgarði verður hægt að ná utan um skipulag miðhálendisins í heild sinni. Því hefur verið haldið fram að með stofnun Hálendisþjóðgarðs sé skipulagsvaldið á hálendinu tekið af sveitarfélögum á svæðinu. Það er ekki rétt. Sveitarfélög munu áfram vera ráðandi í skipulagsmálum þessa svæðis. Breytingin yrði hins vegar sú að skipulagsáætlanir sveitarfélaga myndu verða bundnar af því sem fram kæmi í stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins. Sú áætlun er unnin af umdæmisráðum og stjórn þjóðgarðsins, þar sem sveitarstjórnarfólk verður í meirihluta.

Ótal tækifæri

Stofnun Hálendisþjóðgarðs yrði stærsta framlag Íslands til náttúruverndar í heiminum fram til þessa. Að mínu viti myndu fylgja stofnun hans ótal tækifæri, hvort sem litið er til náttúruverndar, fjölbreyttrar útivistar eða eflingar opinberra starfa og ferðaþjónustu á landsbyggðinni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum