Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. janúar 2020 Innviðaráðuneytið

Ný lög um skráningu einstaklinga hafa tekið gildi

Ný heildarlög um skráningu einstaklinga tóku gildi síðustu áramót. Um er að ræða heildarendurskoðun á eldri löggjöf frá árinu 1962.

Megininntak nýrra laga um skráningu einstaklinga, nr. 140/2019, er hvaða upplýsingar skuli skrá í þjóðskrá, hvernig þær eru skráðar og hvernig þeim er miðlað. Markmið frumvarpsins er að gera mögulegt að halda áreiðanlega skrá yfir einstaklinga, að skráning þeirra sé rétt og skapi öruggan grundvöll fyrir tiltekin réttindi og tilteknar skyldur einstaklinga. Þá er það markmið laganna að skráning upplýsingar í þjóðskrá byggist á bestu fáanlegu gögnum á hverjum tíma.

Helstu nýmæli

  • Fjallað er um meðhöndlun persónuupplýsinga í takt við ný lög um persónuvernd. Kveðið er á um heimild Þjóðskrár Íslands til vinnslu persónuupplýsinga sem hinn skráði leggur til, stofnunin aflar sjálf eða berast frá þriðja aðila, svo sem öðrum opinberum stofnunum eða eiganda fasteignar svo dæmi sé tekið. 
  • Sérstaklega er kveðið á um hvaða upplýsingar er heimilt að skrá. Ekki er þó um tæmandi upptalningu að ræða heldur helstu upplýsingar. Gert er ráð fyrir að ráðherra verði heimilt með reglugerð að ákveða að skrá skuli aðrar þær upplýsingar sem þörf er á að safna og halda, svo sem netföng einstaklinga svo dæmi sé tekið.
  • Í fyrsta sinn er kveðið á um hugtakið kennitölu í lögum með þeim hætti sem gert er í lögunum en hingað til hefur skort ákvæði í lög um hver það sé sem gefur einstaklingum kennitölur.
  • Aðeins opinberir aðilar geta haft milligöngu um stofnun kerfiskennitölu líkt og á öðrum Norðurlöndum, en ekki einkaaðilar svo sem bankar. Kerfiskennitölur eru gefnar út vegna einstaklinga sem ekki þurfa að uppfylla, eða uppfylla ekki skilyrði skráningar í þjóðskrá. Í kerfiskennitöluskrá eru í dag rúmlega 75.000 kennitölur.
  • Gert er ráð fyrir því í framtíðinni, þegar uppfært þjóðskrárkerfi lítur dagsins ljós, að heildarafhending þjóðskrár verði óheimil. Í staðinn verði upplýsingar úr miðlægu skránni sóttar með vefkalli í skránna. Þannig verði allar uppflettingar rekjanlegar, svo sem gert er ráð fyrir í nýjum persónuverndarlögum. Einstaklingar geta einnig óskað eftir upplýsingum um það hverjir hafa verið að fletta þeim upp í þjóðskrá. Í dag er þjóðskráin afhent í heild sinni og síðan fer það eftir því hvernig samning viðkomandi kaupandi er með við Þjóðskrá Íslands hversu oft skráin er uppfærð. 
  • Þá er gert ráð fyrir þeirri nýjung, þegar uppfært kerfi verður tekið í notkun, að hægt verði koma í veg fyrir það að upplýsingum um nafn og/eða lögheimili eða aðsetur viðkomandi og nánustu fjölskyldu verði miðlað úr þjóðskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum