Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. janúar 2020 Dómsmálaráðuneytið

Fjórir sóttu um embætti dómara við Landsrétt

Þann 3. janúar 2020 auglýsti dómsmálaráðuneytið laust til umsóknar eitt embætti dómara við Landsrétt og rann umsóknarfrestur út þann 20. janúar sl. Skipað verður í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum. 

 Umsækjendur um embættið eru: 

1. Ásmundur Helgason, dómari við Landsrétt

2. Ástráður Haraldsson, héraðsdómari

3. Ragnheiður Bragadóttir, dómari við Landsrétt

4. Sandra Baldvinsdóttir, héraðsdómari

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum