Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. febrúar 2020 Innviðaráðuneytið

Sameining fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi staðfest

Snæfell - myndHugi Ólafsson

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra staðfesti í dag sameiningu Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar í eitt sveitarfélag. Með sameiningunni verður til eitt stærsta sveitarfélag landsins að flatarmáli, með tæplega fimm þúsund íbúa. Íbúar sveitarfélaganna samþykktu sameininguna með afgerandi hætti þann 26. október sl.

Boðað verður til sveitarstjórnarkosninga laugardaginn 18. apríl nk. þar sem kosið verður í sveitarstjórn hins sameinaða sveitarfélags. Nýkjörin sveitarstjórn tekur við stjórn sveitarfélagsins 15 dögum síðar eða 3. maí og á sama tíma tekur sameiningin gildi.

Framundan er atkvæðagreiðsla um nýtt nafn hins sameinaða sveitarfélags en nafnanefnd auglýsti eftir hugmyndum og bárust 112 tillögur með 67 hugmyndum að nýjum nöfnum. Nokkrar tillögur verða lagðar fyrir kjósendur í atkvæðagreiðslu sem fer fram samhliða sveitarstjórnarkosningum 18. apríl nk.

Árið 1950 voru sveitarfélögin 229 og hefur þeim fækkað í nokkrum skrefum. Árin 1994 til 2006 var mikið um sameiningar og fækkaði sveitarfélögum þá úr 196 í 79 og verða 69 frá og með 3. maí nk.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum