Hoppa yfir valmynd

Frétt

3. mars 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Opinn kynningarfundur á Egilsstöðum um Hálendisþjóðgarð

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, kynnir áform um stofnun Hálendisþjóðgarðs á opnum fundi á Egilsstöðum fimmtudaginn 5. mars klukkan 20:00. Fundurinn er sá síðasti af átta í röð kynningarfunda vítt og breitt um landið.

Á fundinum mun ráðherra m.a. fara yfir forsendur og markmið með stofnun Hálendisþjóðgarðs og kynna helstu atriði frumvarps þar að lútandi sem hann hyggst mæla fyrir á Alþingi síðar í mánuðinum.

Um er að ræða fund sem fresta þurfti í tvígang í janúar sl. vegna umhleypinga í veðri.

Fundurinn er öllum opinn og fer fram í fundarsal Icelandair hótels Héraðs.

Verið velkomin.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum