Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. mars 2020 Heilbrigðisráðuneytið

Tillögur um menntun sjúkraliða

Frá skilafundi starfshópsins með heilbrigðisráðherra - myndMynd: Heilbrigðisráðuneyti -/ME

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tók við tillögum starfshópsins á fundi í gær þar sem tillögurnar voru kynntar fyrir ráðherra og rætt um næstu skref. Fjallað var um menntunarmál heilbrigðisstétta á fundi ráðherranefndar um samræmingu mála í ágúst síðastliðnum. Þar voru meðal annars rædd áform um samstarf heilbrigðisráðuneytis og mennta- og menningarmálaráðuneytis á þessu sviði, meðal annars með stofnun starfshóps um menntun sjúkraliða.

Í skýrslu hópsins kemur fram að á síðustu árum hafi 90 – 100 sjúkraliðar brautskráðst ár hvert en áætlað er að um helmingur útskrifaðra sjúkraliða starfi við fagið. „Það er mikil vöntun á sjúkraliðum og það mun síst batna nema gripið verði til ráðstafana. Hér höfum við góðar tillögur að byggja á. Tillögur sem eiga að stuðla að því að fleiri sækist eftir að mennta sig sem sjúkraliðar og eins tillögur sem hafa það markmið að veita starfandi sjúkraliðum aukin tækifæri til starfsþróunar m.a. með markvissu framhaldsnámi.“ Ráðherra mun á næstunni leggja fram minnisblað í ríkisstjórn um tillögur hópsins og næstu skref.

Formaður starfshópsins var Eygló Ingadóttir. Aðrir nendarmenn voru Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Kristjana Guðbergsdóttir, tilnefnd af Landspítala, Sigurlaug Stefánsdóttir, tilnefnd af Sjúkrahúsinu á Akureyri, Sigríður Zoëga, tilnefnd af Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands og Birna Ólafsdóttir, tilnefnd af Sjúkraliðafélagi Íslands. Starfsmaður hópsins var Brynhildur Magnúsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum