Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. mars 2020 Utanríkisráðuneytið

Tímabundið dregið úr starfsemi sendiráða Íslands í Afríku

Sendiráð Danmerkur og Íslands í Kampala. - mynd
Sendiráð Íslands í Úganda og Malaví munu draga úr starfsemi sinni næstu vikur vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Útsendir starfsmenn munu snúa heim tímabundið. Er það gert í ljósi ferðatakmarkana sem settar hafa verið á í þessum ríkjum og þeirrar óvissu sem framundan er um útbreiðslu veirunnar og flugframboð í heiminum.

Sendiráðin hafa umsjón með tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands í Malaví og Úganda. Flest verkefna eru unnin með héraðsyfirvöldum og alþjóðastofnunum í ríkjunum og er stýrt af þarlendu starfsfólki. Svo lengi sem aðstæður leyfa verður þessum verkefnum haldið áfram. Umdæmi sendiráðsins í Kampala í Úganda nær að auki til Kenía, Eþíópíu, Djíbútí, Suður-Afríku, Namibíu og Afríkusambandsins í Addis Ababa og sinnir sendiráðið jafnframt fastanefnd Íslands hjá Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) í Næróbí.

Á meðan starfsemi er í lágmarki verða skrifstofur sendiráðanna lokaðar en hægt er að hafa samband við sendiráðið í Kampala í gegnum netfangið [email protected] og í síma +256 312 531 100 eða +354 545 7455 og sendiráðið í Lilongwe í gegnum netfangið [email protected] í síma +265 888 960 464/999 960 464.

Viðbúið er að faraldurinn geti aukið enn frekar á þá neyð sem nú þegar er fyrir hendi á svæðum þar sem sárafátækt ríkir og jafnvel skapað óróa. Ísland hyggst leggja þeim svæðum lið í samstarfi við alþjóðastofnanir og mannúðarsamtök.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum