Hoppa yfir valmynd

Frétt

25. mars 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Umsóknir streyma inn vegna skerts starfshlutfalls

Ásmundur Einar Daðason - mynd

Í dag var opnað fyrir umsóknir um skert starfshlutfall á vef Vinnumálastofnunar. Alþingi samþykkti á föstudag frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, um um rétt til greiðslu at­vinnu­leys­is­bóta sam­hliða minnkuðu starfs­hlut­falli vegna tíma­bund­ins sam­drátt­ar í starf­semi vinnu­veit­enda, svokallaða hlutastarfaleið. Vinnumálastofnun hefur umsjón með umsóknum um atvinnuleysisbætur vegna minnkaðs starfshlutfalls og hafa um 500 umsóknir bæst við á hverjum klukkutíma frá því opnað var fyrir umsóknir í hádeginu. Alls voru umsóknirnar í kringum 4000 kl. 16 í dag

Samkvæmt lögunum getur fólk sem verið hefur í fullu starfi farið niður í allt að 25 prósenta starfshlutfall og átt rétt á bótum. Þeir sem eru með 400 þúsund eða minna í mánaðarlaun fá fullar bætur á móti skertu hlutfalli í vinnu. Sótt er um í gegnum mínar síður á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Stefnt er að því að greiða fyrstu greiðslurnar 31. mars. Einhverjar greiðslur geta hins vegar dregist fram í byrjun apríl. Allar umsóknir gilda afturvirkt frá 15. mars síðastliðnum.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Markmiðið með lagasetningunni er einfalt; stuðla að því að vinnuveitendur haldi ráðningarsambandi við starfsmenn sína eins og frekast er unnt. Þessi miklu viðbrögð sýna að þessar aðgerðir eru að virka og við ætlum að fara í gegnum þetta saman og að hér verði kröftug viðspyrna í þessum tímabundna ástandi sem faraldurinn er.”

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar: „Það er fagnaðarefni hversu hratt hefur gengið að vinna þetta verkefni og það hefur verið mikið álag á vef Vinnumálastofnunar frá því opnuðum fyrir umsóknir í dag. Umsóknirnar sem okkur hafa borist í dag eru fjölmargar og við hvetjum bæði atvinnurekendur og launafólk til þess að kynna sér þessi úrræði vel.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum