Hoppa yfir valmynd

Frétt

31. mars 2020 Heilbrigðisráðuneytið

Þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki sem starfa samkvæmt undanþágu frá samkomubanni

Eftirfarandi er listi yfir fyrirtæki sem fengið hafa undanþágu frá samkomubanni svo unnt sé að halda starfsemi þeirra órofinni. Heilbrigðisráðherra veitti undanþáguna að undangengnu samráði við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Matvælastofnun. Breytingar kunna að verða á listanum sem verður þá uppfærður.

Margar umsóknir hafa borist heilbrigðisráðuneytinu um undanþágur frá takmörkun á samkomum sem heilbrigðisráðherra setti með auglýsingu 243/2020 til að sporna við útbreiðslu Covid-19. Flestum þeirra hefur verið hafnað. Undanþágur eru því aðeins veittar að afar brýnir hagsmunir liggi að baki sem varði velferð almennings og þjóðarhag.

Við mat á því hvort veita skuli undanþágu frá takmörkunum á samkomum er horft til þeirra viðmiða sem sóttvarnalæknir byggir á við veitingu undanþága frá sóttkví. Þau felast í því að um sé að ræða samfélagslega ómissandi innviði sem mega ekki stöðvast vegna lífsbjargandi starfsemi, svo sem raforku, fjarskipta, samgangna, heilbrigðisstarfsemi, löggæslu, sjúkraflutninga og slökkviliða. Önnur starfsemi sem mögulega getur fallið undir heimild til undanþágu skv. auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum er starfsemi fyrirtækja sem telst kerfislega og efnahagslega mikilvæg, svo sem til að tryggja innviði, sorphirðu, aðföng, mætvælaframleiðslu, flutninga matvæla, lyfja og annarra nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Veiting undanþágu þarf einnig að byggjast á því að því sem næst ómögulegt sé að aðlaga starfsemi að reglum auglýsingar nr. 243/2020.

Undanþága heilbrigðisráðherra sem hér um ræðir er sem fyrr segir veitt eftir samráð við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Matvælastofnun, og tekur til fyrirtækja í stóriðju, sjávarútvegi, matvælaframleiðslu og annarri mikilvægri starfsemi. Veitt er undanþága frá 3. og 4. gr. auglýsingar nr. 243/2020 að uppfylltum tilteknum ströngum skilyrðum. Nánar má lesa um ákvörðunina og sett skilyrði fyrir undanþágu í bréfi til hlutaðeigandi aðila og gátlista því fylgjandi um órofinn rekstur fyrirtækja.

Fyrirtæki sem starfa á grundvelli undanþágu:

Íslandspóstur

Samtök iðnaðarins*

Alcoa á Reyðafirði

Elkem á Grundartanga

Matfugl í Mosfellsbæ

Mjólkursamlag Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki Hafnarfirði (tilk. 1.04)

Mjólkursamsalan á Selfossi

Norðurál á Grundaratanga

PCC á Bakka á Húsavík Hafnarfirði (tilk. 1.04)

Rio Tinto – Ísal í Straumsvík í Hafnarfirði (tilk. 1.04)

Terra í Hafnarfirði

(*Birt með fyrirvara Samtaka iðnaðarins um að ekki sé víst að listinn sé tæmandi)

 

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi*:

Arnarlax hf., Bíldudal (tilk. 1.04)

Brim hf., Reykjavík

Fiskkaup hf., Reykjavík

FISK-Seafood ehf., Sauðárkróki (tilk. 1.04)

Fiskverkun Ásbergs ehf., Suðurnesjabæ (tilk. 1.04)

Fiskvinnslan Íslandssaga hf., Suðureyri

Guðmundur Runólfsson hf., Grundarfirði

Hraðfrystihús Hellissands hf., Hellissandi (tilk. 1.04)

Hraðfrystihúsið Gunnvör hf., Hnífsdal

Ísfélag Vestmannaeyja hf., Vestmannaeyjum

Jakob Valgeir ehf., Bolungarvík (tilk. 1.04)

Loðnuvinnslan hf., Fáskrúðsfirði (tilk. 1.04)

Nesfiskur ehf., Garði

Ný-Fiskur hf., Suðurnesjabæ (tilk. 1.04)

Oddi hf., Patreksfirði

Samherji ehf. / Útgerðarfélag Akureyringa ehf., Akureyri og Dalvík

Síldarvinnslan hf. í Neskaupsstað (tilk. 2.04)

Skinney-Þinganes hf., Hornafirði

Soffanías Cecilsson hf., Grundarfirði (tilk. 1.04)

Vinnslustöðin hf. og dótturfyrirtæki, Vestmannaeyjum

Vísir hf., Grindavík (tilk. 1.04)

Þorbjörn hf., Grindavík

Þórsnes ehf., Stykkishólmi (tilk. 1.04)

(*Birt með fyrirvara Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi sem öfluðu upplýsinganna um að ekki sé víst að listinn sé tæmandi)

Bændasamtök Íslands:

Bændasamtök Íslands áttu fund með heilbrigðisráðuneytinu vegna mögulegrar undanþágu vegna aðildarfélaga sinna en ekki liggur fyrir hvort einhverjir falli undir þá undanþágu og þurfi eða sjái sér fært að nýta hana.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum