Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. apríl 2020 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bárust 227 gild tilboð um kaup og sölu á tilboðsmarkaði fyrir greiðslumark mjólkur þann 1. apríl 2020.. Þetta er fyrsti markaðurinn með greiðslumark sem samið var um við endurskoðuðun á samstarfssamningi um nautgriparækt milli ríkis og bænda á síðasta ári.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum AFURÐ sem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða þessa fyrsta markaðar nú fyrir.

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur þann 1. apríl 2020 kom  fram jafnvægisverð á markaði krónur 185 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.

Ráðherra ákvað að tillögu framkvæmdanefndar búvörusamninga að setja hámarksverð sem var 185 kr. fyrir hvern lítra mjólkur. Skoða þarf myndun jafnvægisverðs í þessu ljósi, þar sem tilboð tóku nær undantekningarlaust mið af settu hámarksverði.

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 9
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 218
  • Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði voru 4.
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 586.046 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru      9.836.190 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 585.981lítrar að andvirði 108.406.485 kr.

 

Línuritið sýnir niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. apríl 2020. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 185 kr./l. eins og áður segir.

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði 185  kr./l. eða lægra selja nú greiðslumark sitt. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið , mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í AFURÐ og á Bændatorginu.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum