Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. maí 2020 Matvælaráðuneytið

Fjárfestingastuðningur í nautgriparækt – yfirferð umsókna 2020 lokið

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur lokið yfirferð umsókna um fjárfestingastuðning í nautgriparækt vegna framkvæmda á árinu 2020 í samræmi við reglugerð um stuðning í nautgriparækt nr. 1252/2019.

Alls bárust 105 umsóknir, en af þeim voru 44 ný umsókn og 61 framhaldsumsóknir fyrir framkvæmdum sem hófust 2018 eða 2019. Heildarkostnaður við framkvæmdir nautgripabænda sem veittur er stuðningur fyrir á árinu 2020 er um 4,4 milljarðar króna. Til úthlutunar eru kr. 210.711.784 samkvæmt fjárlögum ársins. Styrkhlutfall reiknast því um 4,7% af heildarkostnaði sem er heldur hærra en síðasta ár. Hæsti áætlaði styrkur er kr. 10.330.146 en lægsti styrkur kr. 52.389. Eins og fyrri ár kom til hlutfallslegrar skerðingar á framlög samþykktra umsókna í samræmi við 28. gr. reglugerðarinnar þar sem fjármunir dugðu ekki til að greiða hámarksstyrkhlutfall, sem er 40%.

Um fjárfestingastuðning í nautgriparækt er fjallað í VIIl. kafla reglugerðar um stuðning í nautgriparækt nr. 1252/2019. Fjárfestingastuðningur er veittur vegna framkvæmda sem stuðla að hagkvæmari búskaparháttum, bættum aðbúnaði nautgripa og aukinni umhverfisvernd. Markmið stuðningsins er að hraða því að framleiðendur standist kröfur skv. reglugerð um velferð nautgripa nr. 1065/2014. Stuðningurinn er veittur vegna nýframkvæmda og/eða endurbóta á eldri byggingum og kom fyrst til úthlutunar árið 2017 með innleiðingu nýrra búvörusamninga.

Umsækjendur geta nálgast svarbréf við umsókn sinni inni á Bændatorginu undir Rafræn skjöl > Bréf.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum