Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. maí 2020 Forsætisráðuneytið

Ísland upp um fjögur sæti á Regnbogakortinu

Ísland hækkar um fjögur sæti á milli ára á Regnbogakortinu, úttekt á stöðu og réttindum hinsegin fólks í Evrópu. Ísland er nú komið í 14. sæti en var í 18. sæti í fyrra (2019).

Evrópusamtök hinsegin fólks (ILGA-Europe) birta Regnbogakortið árlega í kringum alþjóðlegan baráttudag hinsegin fólks sem er 17. maí. Kortið sýnir á myndrænan hátt lagalega stöðu og réttindi hinsegin fólks í ríkjum Evrópu.

Frá því að síðasta Regnbogakort var birt hefur Alþingi samþykkt frumvarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um kynrænt sjálfræði. Með lögunum er komið til móts við ný og breytt viðhorf til opinberrar skráningar kyns og stuðlað að réttarbótum fyrir trans og intersex fólk með því að staðfesta rétt einstaklinga til að breyta kynskráningu sinni í samræmi við eigin upplifun og án þess að þurfa að sæta skilyrðum um sjúkdómsgreiningu og læknismeðferð.

Ísland stefnir að því að tryggja enn betur réttindi trans og intersex fólks. Starfshópar á vegum forsætisráðuneytisins vinna að tillögum um breytingar á lögum sem nauðsynlegar eru til að tryggja réttindi trans og intersex fólks. Þá er einnig unnið að málefnum barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni, þar á meðal heilbrigðisþjónustu við þau.

Samþykkt framangreindra laga hefur þýtt verulegar réttarbætur til handa trans- og intersex fólki hér á landi og er Ísland það Norðurlanda sem hefur hækkað mest frá birtingu kortsins 2019. Danmörk (4. sæti) og Noregur (5. sæti) hafa hækkað um eitt sæti frá því 2019, Finnland (8. sæti) hefur fallið niður um fjögur sæti og Svíþjóð (10. sæti) stendur í stað.

Af 49 þjóðum trónir Malta áfram efst á listanum og Azjerbeidjan er áfram neðst á listanum. Ungverjaland (27. sæti) er það ríki sem hefur fallið mest frá útgáfu síðasta korts eða um átta sæti og Norður-Makedónía (33. sæti) er það ríki sem hefur færst mest upp listann, eða um 12 sæti.

Í tengslum við alþjóðalegan baráttudag hinsegin fólks birtu Evrópusamtök þeirra myndband með ávarpi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á vefsíðu sinni. Myndbandið má nálgast hér.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum