Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. maí 2020 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Tilkynningagátt mikilvægt skref í baráttu gegn ógnum á netinu og misnotkun persónuupplýsinga

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, opnar nýja tilkynningagátt um öryggisatvik með formlegum hætti. - mynd

Ný tilkynningagátt um öryggisatvik – oryggisatvik.island.is – hefur verið opnuð en gáttin auðveldar stofnunum og fyrirtækjum að tilkynna um öryggisatvik sem upp kunna að koma í rekstri þeirra. Öryggisatvikin geta verið netatvik, tengd netárásum eða netglæpum, en geta einnig orðið með öðrum hætti hvað varðar vernd persónuupplýsinga.

Í tilkynningagáttinni er á einum stað og með samræmdum hætti hægt að tilkynna um öll öryggisatvik og öryggisbresti. Það er mikils hagræðis fyrir fyrirtæki og stofnanir, sem t.d. kunna að þurfa að tilkynna að stór netinnrás sé hafin, að þurfa ekki að margskrá sömu upplýsingar í mismunandi kerfi.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, opnaði gáttina með formlegum hætti í dag.

„Netöryggi og vernd persónuupplýsinga er gríðarlega mikilvægt verkefni. Við vitum að íslensk fyrirtæki hafa tapað milljörðum króna vegna netárása og mörg þeirra veiga sig við að tilkynna öryggisatvik. Því má gera ráð fyrir að tapið sé mörgum sinnum meira. Við höfum unnið að því á síðustu árum að bæta lagaumgjörð á þessum sviðum og efla vitund um netöryggi. Með nýrri tilkynningagátt er stórt skref stigið að bæta þjónustu hins opinbera og gera það einfaldara og skilvirkara að tilkynna um öryggisatvik eða netárás til réttra aðila á einum stað. Samstarf Persónuverndar, Póst- og fjarskiptastofnunar og Lögreglunnar er til marks um góða samvinnu eftirlitsaðila að sameiginlegu markmiði,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Auk hans fluttu Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar, Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri ávörp af þessu tilefni.

Tilkynningagáttinni er ætlað að bæta þjónustu við þá aðila sem er skylt að tilkynna öryggisatvik samkvæmt lögum hvort sem þau heyra undir Persónuvernd eða netöryggissveitina CERT-IS sem Póst- og fjarskiptastofnun rekur. Einnig er hægt að tilkynna atvikin til Lögreglunnar. 

Gáttin er samvinnuverkefni Persónuverndar, Póst- og fjarskiptastofnunar/CERT-IS og Lögreglunnar undir forystu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Samkvæmt persónuverndarlögum frá 2018 ber fyrirtækjum og stofnunum að tilkynna öryggisbresti við vinnslu persónuupplýsinga innan 72 klukkustunda. Frá og með 1. september nk. ber rekstraraðilum mikilvægra innviða einnig að tilkynna alvarleg öryggisatvik, sem ógna rekstri til CERT-IS, netöryggissveitar Póst og fjarskiptastofnunar. Með tilkynningagáttinni er þessum aðilum gert auðveldara að tilkynna atvik, sem oft ber að tilkynna til beggja stjórnvalda. Einnig fæst betri yfirsýn yfir öryggistilvik og viðbrögð stjórnvalda verða samræmdari.

Tilkynningagáttin var smíðuð af fyrirtækinu Advania með stuðningi samgöngu og sveitarstjórnarráðuneytisins en gáttin er rekin sameiginlega af Póst- og fjarskiptastofnun og Persónuvernd. Öryggisúttekt fór fram á gáttinni áður en hún var tekin í notkun – og var hún einnig prófuð af hópi hagsmunaaðila. Gáttin er vistuð á Ísland.is – oryggisbrestur.island.is – og nota þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn.

  • Við opnun nýrrar tilkynningagáttar um öryggisatvik: Frá vinstri: Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í ráðuneytinu, og Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum