Hoppa yfir valmynd

Frétt

26. maí 2020 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisvarpið - 5. þáttur. Ísland og Sameinuðu þjóðirnar

Helen Inga S. von Ernst, sérfræðingur hjá utanríkisráðuneytinu, og Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi. - mynd

Í fimmta þætti Utanríkisvarpsins eru Sameinuðu þjóðirnar til umfjöllunar. Rætt er við Jörund Valtýsson, fastafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og Helen Ingu S. von Ernst sérfræðing um þessa mikilvægu stofnun, stöðu alþjóðakerfisins og alþjóðlegan jafnlaunadag Sameinuðu Þjóðanna sem að tillögu Íslands verður haldinn í fyrsta sinn í haust. 

Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar árið 1945, fyrir 75 árum síðan, og fagna því stórafmæli í ár. Ísland fékk aðild að Sameinuðu þjóðunum 1946 og hafa þær verið ein af lykilstofnunum í íslenskri utanríkisþjónustu allar götur síðan.  

Jörundur Valtýsson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, og Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins.

Jörundur Valtýsson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, og Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins.

Tekið skal fram að þátturinn var tekinn upp áður en COVID-19 faraldurinn skall á.

Þættina má einnig nálgast á helstu hlaðvarpsveitum, t.d. Soundcloud og Spotify.
Upphafsstef: Daði Birgisson.

Utanríkisvarpið · 5. þáttur. Ísland og Sameinuðu þjóðirnar

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum