Hoppa yfir valmynd

Frétt

27. maí 2020 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Starfshópur skipaður um Errósetur á Kirkjubæjarklaustri

Erró, Rockwell Painting My Autoportrait, 2009. Verkið er í eigu Listasafns Reykjavíkur. - mynd
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað starfshóp um starfsemi og uppbyggingu Erróseturs á Kirkjubæjarklaustri.

„Við viljum miðla okkar menningu, sögu og menningararfi á fjölbreyttan hátt og sem víðast um landið. Það er sérlega ánægjulegt hversu vel hefur tekist til við að byggja upp margvísleg menningarsetur og söfn út um allt land – þangað er gaman að koma, fræðast og upplifa, fyrir alla fjölskylduna. Verkefni af þessu tagi gæti líkað skapað jarðveg fyrir frjótt og gott samstarf, t.d. við listasöfnin og Listaháskóla Íslands,“ segir ráðherra.

Myndlistarmaðurinn Erró hefur á löngum ferli skapað sér orðstýr sem einn af leiðandi popplistamönnum Evrópu. Í verkum fæst hann við fjölbreytt viðfangsefni en kunnastur er hann fyrir málverk þar sem ofgnótt myndheims samtímans er uppspretta fjölbreyttra hugleiðinga meðal annars um neyslusamfélagið, pólitík og samfélagsleg viðfangsefni hvers tíma. Erró ólst upp á Kirkjubæjarklaustri, en hélt síðar til náms í Reykjavík árið 1949, þar sem hann útskrifaðist úr teiknikennaradeild árið 1952 og hélt síðan til frekara náms í Noregi og á Ítalíu.

Markmið verkefnisins er að koma upp með safni og/eða sýningu um líf og uppvöxt listamannsins og miðla listferli hans í máli og myndum. Vonir standa til þess að Errósetur yrði listatengdu menningarstarfi til framdráttar og mikilvægur afþreyingar- og fræðslustaður í héraði og á landsvísu. Hugmyndin á sér nokkurn aðdraganda en áhugafólk um stofnun Erróseturs kynnti áform sín um málið árið 2011 og Félag um Errósetur var stofnað árið 2012.

Starfshópinn skipa Eiríkur Þorláksson formaður, tilnefndur af mennta- og menningarmálaráðuneyti, Eva Björk Hjarðardóttir oddviti, fulltrúi Skaftárhrepps, og Rúnar Leifsson tilnefndur af mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum