Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. júní 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Goðafoss friðlýstur

Frá undirritun friðlýsingar Goðafoss í dag - myndAuðunn Níelsson

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði friðlýsingu Goðafoss í Skjálfandafljóti í dag. Fossinn er einn af vinsælustu ferðamannastöðum Norðurlands.

Goðafoss er með vatnsmestu fossum landsins. Hann greinist í tvo meginfossa og nokkra smærri og er ásýnd hans fjölbreytileg eftir vatnsmagni, veðurfari og árstíð. Fossinn er 9-17 metra hár og um 30 metra breiður. Landið við vesturbakka Goðafoss heitir Hrútey og afmarkast hún af Hrúteyjarkvísl, sem greinist frá Skjálfandafljóti ofan við Goðafoss, en sameinast fljótinu aftur alllangt neðar.

Meginmarkmið með verndun svæðisins er að vernda sérstakar náttúruminjar, breytileika jarðmyndana og fossinn sjálfan og er hann friðlýstur sem náttúruvætti. Friðlýsingin felur m.a. í sér að náttúrulegu vatnsrennsli í fossinn er viðhaldið sökum fegurðar hans og sérkenna og útivistargildis svæðisins.

„Í dag friðlýstum við eina helstu náttúruperlu landsins,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Með friðlýsingunni verður komið á skipulegri umsjón með svæðinu með landvörslu og þar með einnig fræðslu og eftirliti. Friðlýsing Goðafoss er afar ánægjulegt skref í náttúruvernd á Íslandi og tryggir að komandi kynslóðir geti notið hans um ókomna tíð.“

Þjóðsaga segir að Þorgeir Þorkelsson Ljósvetningagoði hafi varpað goðalíkneskjum sínum í fossinn i kjölfar þess að honum hafi verið falið það hlutverk að ná lögsáttum milli heiðinna manna og kristinna og hann hafi tekið upp nýjan sið. Af þessu á Goðafoss að hafa dregið nafn sitt.

Friðlýsingin var undirrituð að viðstöddum sveitarstjórnarmönnum í Þingeyjarsveit og landeigendum, fulltrúum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Umhverfisstofnunar, heimafólki og öðrum gestum á svæðinu. Við athöfnina lék norðlenski blásarakvintettinn Norðangarri og að henni lokinni var boðið til kaffisamsætis á Fosshóli.

Ráðherra auk fulltrúa landeigenda, sveitarfélagsins Þingeyjarsveitar, Umhverfisstofnunar og ráðuneytisins.

 

Við Goðafoss


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum