Hoppa yfir valmynd

Frétt

18. júní 2020 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Tæpum 4 milljónum kr. úthlutað úr Menningarsjóði Íslands og Finnlands

Tilkynnt hefur verið um úthlutanir styrkja og framlaga úr Menningarsjóði Íslands og Finnlands fyrir seinni helming ársins 2020 og fyrri hluta ársins 2021. Hlutverk sjóðsins er að styrkja árlega félög, samtök og einstaklinga vegna verkefna sem orðið geta til þess að efla menningarsamskipti Íslands og Finnlands. Alls bárust 69 umsóknir en stjórn sjóðsins tók ákvörðun um að úthluta alls 3,9 milljónum kr. að þessu sinni, til 35 verkefna.

Úthlutunarfundinn sátu Pekko Timonen (formaður), FM Riita Heinämaa, Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir og Málfríður Kristjánsdóttir.

Sjá nánari upplýsingar um styrkúthlutanir Menningarsjóðs Íslands og Finnlands.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum