Hoppa yfir valmynd

Frétt

3. júlí 2020 Dómsmálaráðuneytið

Páley skipuð lögreglustjóri á Norðurlandi eystra

Páley Borgþórsdóttir - mynd

Dómsmálaráðherra hefur skipað Páleyju Borgþórsdóttur í embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra frá og með 13. júlí næstkomandi. Hæfnisnefnd sem skipuð var til að fara yfir og meta hæfni umsókna um embætti lögreglustjóra mat Páleyju hæfasta umsækjenda.

Páley hefur frá árinu 2015 gegnt embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum. Hún lauk embættisprófi í lögfræði árið 2002. Hún var löglærður fulltrúi hjá sýslumannsembættinu í Vestmannaeyjum frá 2002 til 2007 og starfaði sem lögmaður frá 2007 til 2014. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum