Hoppa yfir valmynd

Frétt

28. júlí 2020 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Sigurjón Sighvatsson skipaður formaður kvikmyndaráðs

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað nýtt átta manna kvikmyndaráð. Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi, er formaður ráðsins. Samkvæmt kvikmyndalögum er kvikmyndaráð stjórnvöldum og Kvikmyndamiðstöð Íslands til ráðgjafar um málefni kvikmynda og gerir tillögur til ráðherra um stefnu og markmið opinberra aðgerða á sviði kvikmyndalistar.

„Sem listgrein stendur kvikmyndagerð á tímamótum. Hér á landi hefur mótast burðug atvinnugrein sem stenst fyllilega alþjóðlegan samanburð. Árangurinn er staðfestur með vaxandi fjölda tilnefninga og þátttöku íslenskra kvikmynda á virtum hátíðum um allan heim. Fleiri íslenskir leikstjórar og höfundar feta inn á nýjar og ótroðnar slóðir og okkur er ljúft og skylt að tryggja bestu mögulegu aðstæður fyrir íslenska kvikmyndagerð til að vaxa og dafna,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Ráðherra skal skipa átta fulltrúa í kvikmyndaráð til þriggja ára í senn, formann án tilnefningar, en hina sjö samkvæmt tilnefningum. Auk Sigurjóns eru í ráðinu Margrét Örnólfsdóttir, varaformaður og tilnefnd af Félagi leikskálda og handritshöfunda, Anna Þóra Steinþórsdóttir tilnefnd af Félagi kvikmyndagerðarmanna, Lilja Ósk Snorradóttir tilnefnd af Framleiðendafélaginu - SÍK, Ragnar Bragason tilnefndur af Samtökum kvikmyndaleikstjóra, Lilja Ósk Diðriksdóttir tilnefnd af Félagi kvikmyndahúsaeigenda, Bergsteinn Björgúlfsson tilnefndur af Bandalagi íslenskra listamanna og Birna Hafstein tilnefnd af Félagi íslenskra leikara. Varamenn eru Auður Edda Jökulsdóttir skipuð án tilnefningar, Elva Sara Ingvarsdóttir tilnefnd af Félagi kvikmyndagerðamanna, Kristinn Þórðarson tilnefndur af Framleiðendafélaginu – SÍK, Ása Helga Hjörleifsdóttir tilnefnd af Samtökum kvikmyndaleikstjóra, Þorvaldur Árnason tilnefndur af Félagi kvikmyndahúsaeigenda, Sigríður Rósa Bjarnadóttir tilnefnd af Bandalagi íslenskra listamanna, Hjálmar Hjálmarsson tilnefndur af Félagi íslenskra leikara og Huldar Breiðfjörð tilnefndur af Félagi leikskálda og handritshöfunda.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum