Hoppa yfir valmynd

Frétt

26. ágúst 2020 Utanríkisráðuneytið

Fundur um áhrif og viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum í Afríku

Fundur um áhrif og viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum í Afríku - myndUtanríkisráðuneytið
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók í dag þátt í fjarfundi þróunarsamvinnuráðherra Norðurlanda með ráðherrum sjö Afríkuríkja, yfirmönnum sex stofnana Sameinuðu þjóðanna og öðrum samstarfsaðilum. Efnahagsleg og samfélagsleg áhrif og viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum í Afríku voru þar í brennidepli.
 
Á fundinum voru kynntar niðurstöður samráðs Norðurlandanna um uppbyggingu í Afríku eftir Covid-19 þar sem sérstaklega var fjallað um heilbrigðiskerfi, græna og loftslagsaðlagaða uppbyggingu og jafnrétti kynjanna. Ísland leiddi samstarf Norðurlandanna um jafnrétti kynjanna og stöðu kvenna og stúlkna í tengslum við Covid-19. Fulltrúar Íslands þökkuðu á fundinum fyrir gott og árangursríkt samstarf og lýstu yfir ánægju með að fá tækifæri til að kynna niðurstöður norrænu samvinnunnar fyrir stofnunum Sameinuðu þjóðanna og samstarfsríkjum í Afríku.
 
„Farsóttin hefur þegar breytt heimsmyndinni og haft djúpstæð áhrif á samfélagsgerð um allan heim. Þótt við vitum ekki til fulls hver langtímaáhrifin verða er ljóst að þau verða ólík á konur og karla, stúlkur og drengi og eiga eftir að koma harðast niður á þeim sem standa höllustum fæti. Í því sambandi er mikið áhyggjuefni að kynbundið ofbeldi hefur aukist um allan heim og þess vegna ætlum við að setja aukinn þunga í að sporna við því samfélagsmeini með aðgerðum okkar,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

Norðurlöndin hafa undanfarna mánuði átt í náinni samvinnu undir yfirskriftinni „Build Back Better and Greener“ um viðbrögð við heimsfaraldrinum og hvernig styðja megi Afríkuríki til að byggja upp betri og grænni samfélög að honum loknum. Áhersla hefur verið lögð á kolefnishlutleysi, aukið viðnám við loftslagsbreytingum og jafnari, réttlátari og sjálfbærari samfélög. Vonast er til að samvinnan nýtist til að styðja alþjóðastofnanir og samstarfsríki í þróunarsamvinnu.
 
Nýverið birtu svo þróunarsamvinnuráðherrar Norðurlandanna blaðagrein um mikilvægi menntunar, ekki síst á tímum Covid-19.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum