Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. september 2020 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Stuðningur við einkarekna fjölmiðla

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur samþykkt tillögur fjölmiðlanefndar um sérstakan rekstrarstuðning við einkarekna fjölmiðla, til að mæta efnahagsáhrifum heimsfaraldurs kórónaveiru.

Alþingi samþykkti sl. vor að verja 400 milljónum kr. til verkefnisins og fól ráðherra að setja reglugerð með stoð í 9. gr. laga nr. 37/2020. Þar er tilgreint að við ákvörðun um fjárhæð stuðnings verði litið til tryggingagjalds vegna launagreiðslna til blaða- og fréttamanna, myndatökumanna, ljósmyndara, ritstjóra og aðstoðarritstjóra á árinu 2019 vegna miðlunar á fréttum og fréttatengdu efni. Þá verði tekið mið af beinum verktakagreiðslum til sambærilegra aðila, útgáfutíðni miðilsins og fjölbreytileika. Upplýsingarnar skulu staðfestar af endurskoðanda.

Í reglugerð ráðherra frá 3. júlí 2020 er fjölmiðlanefnd falin umsýsla málsins. Nefndin auglýsti eftir umsóknum 10. júlí sl. og umsóknarfrestur rann út 7. ágúst. Alls bárust 26 umsóknir um sérstakan rekstrarstuðning, þar af 25 frá fjölmiðlaveitum og ein frá félagi sem ekki telst fjölmiðlaveita í skilningi laga um fjölmiðla. Alls uppfylltu 23 umsóknir frá fjölmiðlaveitum skilyrði reglugerðar 670/2020 og skiptist stuðningsupphæðin á milli þeirra þannig:

 

Fyrirtæki

Sótt um vegna:

Stuðningur í kr.*

Árvakur hf.

Morgunblaðið, Mbl.is, K100

99.904.495

Ásprent – Stíll ehf.

Vikublaðið, Vikubladid.is

2.239.059

Birtingur útgáfufélag ehf.

Mannlíf, Mannlif.is

24.017.147

Björt útgáfa ehf.

Hafnfirðingur, Hafnfirdingur.is

852.801

Bændasamtök Íslands

Bændablaðið, Bbl.is, Tímarit Bændablaðsins, Hlaðvarp Bændablaðsins

9.277.877

Eyjasýn ehf.

Eyjafréttir, Eyjafrettir.is

3.091.497

Fröken ehf.

Reykjavík Grapevine, Grapevine.is

7.596.783

Hönnunarhúsið ehf.

Fjarðarfréttir, Fjardarfrettir.is

1.124.341

Kjarninn miðlar ehf.

Kjarninn.is, Hlaðvarp Kjarnans, Vísbending

9.299.482

Kópavogsblaðið slf.

Kópavogsblaðið, Kopavogsbladid.is

466.962

MD Reykjavík ehf.

Iceland Review, Icelandreview.is

5.997.042

Myllusetur ehf.

Fiskifréttir, Fiskifrettir.is, Frjáls verslun, Viðskiptablaðið, Vb.is

20.225.397

N4 ehf

N4, N4 hlaðvarp, N4.is

13.527.946

Prentmet Oddi ehf.

Dagskráin – fréttablað Suðurlands, Dfs.is

1.916.079

Saganet - Útvarp Saga ehf.

Útvarp Saga, Utvarpsaga.is, Utvarpsaga.is hlaðvarp

5.250.398

Skessuhorn ehf

Skessuhorn, Skessuhorn.is

7.326.329

Steinprent ehf.

Bæjarblaðið Jökull

1.683.126

Sýn hf.

Stöð 2, Bylgjan, Vísir.is

91.118.336

Torg ehf.

Fréttablaðið, Frettabladid.is, Hringbraut, Hringbraut.is

64.754.052

Tunnan prentþjónusta ehf.

Hellan héraðsfréttablað, DB-blaðið

1.044.031

Útgáfufélag Austurlands ehf.

Austurglugginn, Austurfrett.is

3.201.564

Útgáfufélagið Stundin ehf.

Stundin, Stundin.is

17.780.267

Víkurfréttir ehf.

Víkurfréttir, Vf.is

7.922.972

*Birt með fyrirvara um innsláttarvillur. 

Umsækjendur hafa fengið send svör við umsóknum sínum. Fjölmiðlar sem starfrækja staðbundna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins gátu samhliða styrkumsókn sinni sótt um styrk úr byggðaáætlun. Ellefu slíkar umsóknir bárust og verður til kynnt um úthlutun þeirra styrkja á næstunni


Ítarefni: Tillögur fjölmiðlanefndar um úthlutun sérstaks rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum