Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. september 2020 Matvælaráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum um jarðræktarstyrki og landgreiðslur

Opnað hefur verið fyrir rafrænar umsóknir um jarðræktarstyrki og landgreiðslur vegna framkvæmda á yfirstandandi ári í Afurð Greiðslukerfi landbúnaðarins afurd.is 
Umsóknum skal skilað eigi síðar en 1. október n.k.

Framleiðendur sem uppfylla skilyrði 3. gr. reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað nr. 1260/2018 geta sótt um jarðræktarstyrk og landgreiðslur. Skilyrði og forsenda fyrir veitingu stuðnings eru fullnægjandi skil á skýrsluhaldi í Jörð.

Jarðræktarstyrkir

Framlögum til jarðræktarstyrks skal varið til jarðræktar, þ.e. nýræktar og endurræktunar á túnum, kornræktar og ræktunar annarra fóðurjurta. Uppskera er forsenda fyrir jarðræktarstyrk. Beit búpenings telst vera uppskera og nýting kornhálms til uppræktunar jarðvegs í útiræktun grænmetis telst styrkhæf. Ekki telst styrkhæf ræktun ef kornrækt er eingöngu ætluð til að draga að gæsir til skotveiði, nema ef kornhálmur er sannarlega hirtur eða plægður niður. Önnur ræktun sem ekki er nytjuð til búskapar, þar með talin sáning í golfvelli, tjaldstæði o.s.frv. er ekki styrkhæf.

Sækja þarf nú um jarðræktarstyrki vegna útiræktaðs grænmetis á sérstökum umsóknum þar sem fjármagn vegna er hluti af endurskoðuðum samstarfssamningi um garðyrkju, og er umsóknarfrestur til 23. október 2020. Auglýst verður hvenær opnað verður fyrir þær umsóknir í Afurð.

Landgreiðslur

Framlögum til landgreiðslna skal ráðstafa á ræktað land sem uppskorið er til fóðuröflunar og framleiðanda er heimilt að nýta. Framlög eru ekki greidd út á land sem eingöngu er nýtt til beitar.

Ítarefni

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi
14. Líf í vatni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum