Hoppa yfir valmynd

Frétt

18. september 2020 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Fjarskiptasamband tryggt á bæjum á Austurlandi

Snæfell - myndHugi Ólafsson

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur náð samkomulagi við Neyðarlínuna um að tryggja fullnægjandi fjarskiptasamband á bæjum á Austurlandi áður en gamla koparkerfið (heimasíminn) verður að fullu lagt niður á næstu vikum. 

Fyrsti áfangi Símans við að fasa út PSTN koparkerfið (heimasíma) hefst 1. október nk. Undir þann áfanga falla ýmsir staðir í dreifbýli, m.a. í póstnúmeri 701 sem tengjast símastöðinni á Brúarási á Héraði. Neyðarlínan mun því hraða framkvæmdum við að bæta farnetssamband á tilteknum bæjum á Jökuldal á Fljótsdalshéraði, í samvinnu við Landsvirkjun og Símann. Sama mun gilda um önnur svæði á landinu þar sem á þarf að halda.

„Síðastliðin ár hef ég lagt mikla áherslu á að ljósleiðaravæða byggðir landsins í gegnum verkefnið Ísland ljóstengt. Það er gríðarlega metnaðarfull stefna. Það er á hinn bóginn mikilvægt að samfella sé í þessari framþróun og að gamla koparkerfið verði ekki lagt af áður en tryggt er að allir bæir hafi öruggt símasamband. Því hef ég beint því til Neyðarlínunnar að tryggja að ekki komi til þess að einstaka bæir verði sambandslausir við umheiminn í þessu ferli. Það væri óásættanlegt,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum