Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. september 2020 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

26 nýsköpunarfyrirtæki fá lán frá Stuðnings - Kríu

Mikill áhugi var á mótframlagslánum Stuðnings - Kríu en umsóknarfrestur um veitingu lána rann út um nýliðna helgi. Alls sóttu 31 fyrirtæki um lán og voru 26 umsóknir samþykktar. Alls verður 755 milljónum króna varið í fjárfestingar frá Stuðnings - Kríu í formi mótframlagslána.

 

Vegna mikils áhuga nýsköpunarfyrirtækja á að nýta sér úrræðið voru heildarumsóknir um lán hærri en  sú fjárhæð sem var til úthlutunar. Vegna þessa var nauðsynlegt að lækka hlutfallslega (pro-rata) þær lánsfjárhæðir sem hvert og eitt fyrirtæki fékk miðað við umsóknir. Skilyrði fyrir þátttöku Stuðnings - Kríu er að umsækjandi hafi tryggt sér sambærilega fjármögnun  einkafjárfesta í formi hlutafjár eða lánveitingar. Með framlagi Stuðnings - Kríu til fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja samhliða fjármögnun einkafjárfesta hefur tæplega 1,4 milljarður króna í heild verið varið til fjármögnunar þessara tilteknu nýsköpunarfyrirtækja á síðustu mánuðum.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra:

Sprota- og nýsköpunarfyrirtæki hafa mikilvægu hlutverki að gegna í uppbyggingu atvinnulífsins.  Í viðspyrnu er sérstaklega mikilvægt að byggja upp á þessum vettvangi. Stuðnings - Kría nýtist í því ótrygga ástandi sem nú ríkir og fjöldi umsókna sýnir þörfina á þessu framtaki og mikilvægi þess að styðja enn frekar við nýsköpun til framtíðar.

Í aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna heimsfaraldursins er lögð sérstök áhersla á að efla nýsköpun og tryggja rekstrargrundvöll sprota- og nýsköpunarfyrirtækja. Stuðnings -Kría er tímabundið stuðningsúrræði stjórnvalda til lífvænlegra nýsköpunar- og sprotafyrirtækja sem vegna breyttra aðstæðna í fjármögnunarumhverfi nýsköpunar á heimsvísu í kjölfar Covid-19 faraldursins þurfa tímabundna aðstoð til að komast yfir hjallann. Úrræðið er á grundvelli laga sem samþykkt voru á Alþingi í júní í sumar með frumvarpi nýsköpunarráðherra. Með Stuðnings - Kríu er hið opinbera að útvega fjármögnun til fyrirtækja sem einkafjárfestar hafa sjálfir trú á og þau kjör sem fyrirtækjunum standa til boða á einkafjármagni eru jöfnuð af Stuðnings - Kríu.

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hefur umsjón með framkvæmd mótframlagslána en ákvarðanir um veitingu lánanna voru teknar af sérstakri nefnd sem skipuð var af ráðherra nýsköpunarmála.


Nefndina skipuðu: 
Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, formaður, skipaður án tilnefningar af nýsköpunarráðherra
Huld Magnúsdóttir, tilnefnd af stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins
Eva Halldórsdóttir, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðherra


Umsóknir voru alls 31, þar af voru 26 samþykktar.

Heildarupphæð, sótt um: 1,680,705,025 kr

Heildaruppæð, samþykkt: 1,375,705,025 kr


Efnisorð

Heimsmarkmiðin

9. Nýsköpun og uppbygging

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum