Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. október 2020 Utanríkisráðuneytið

Heimsfaraldurinn og græn framtíð rædd á ráðherrafundi Alþjóðabankans

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra - mynd

„Það verður ekki litið fram hjá mikilvægi einkageirans við að vernda störf og skapa ný þegar þjóðir vinna sig út úr faraldrinum, og Alþjóðabankinn hefur þar miklu hlutverki að gegna,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra sem tók í dag þátt í ráðherrafundi kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðabankanum. Fundurinn er haldinn í tengslum við ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem fara fram í netheimum að þessu sinni.

Carmen Reinhart, aðalhagfræðingur Alþjóðabankans, var sérstakur gestur fundarins en meginviðfangsefni hans var COVID-19 heimsfaraldurinn og hlutverk Alþjóðabankans í grænni og bættri enduruppbyggingu. Fundarstjórn var í höndum Geirs H. Haarde, aðalfulltrúa ríkjanna átta í stjórn Alþjóðabankans, en Ísland leiðir nú kjördæmastarfið.

Guðlaugur Þór vék í innleggi sínu sérstaklega að sjálfbærri nýtingu endurnýjanlegra náttúruauðlinda sem mikilvægri undirstöðu fyrir grænan vöxt, og lagði í því samhengi áherslu á að í grænni og bættri endurbyggingu gegni Alþjóðabankinn lykilhlutverki í að tryggja að ávinningur stuðli að hagsæld og dragi úr fátækt. Þá kom hann einnig inn á mikilvægi endurnýjanlegrar orku í þessu samhengi, meðal annars að bankinn héldi áfram öflugum stuðningi við jarðhita- og vatnsaflsverkefni.  

Alþjóðabankinn hefur brugðist skjótt við í stuðningi vegna áhrifa COVID-19 og hefur frá því í mars veitt aðstoð til rúmlega 100 landa til að bregðast við faraldrinum. Ljóst er að þörf samstarfslanda bankans, einkum fátækustu landanna, fyrir áframhaldandi aðstoð er gríðarleg því hætt er við að áhrif faraldursins geti leitt til fjölgunar í hópi sárafátækra um allt að 100 milljónir einstaklinga og þannig þurrkað út framfarir síðustu ára í baráttunni gegn fátækt. Í síðustu viku kom út ný skýrsla bankans Reversal of Fortunes þar sem kynnt er nýtt mat bankans á áhrifum farsóttarinnar á fátækt og ójöfnuð á heimsvísu.

Kjördæmið leggur áherslu á mikilvægi þess að allur stuðningur bankans til fátækra ríkja vegna COVID-19 hafi að leiðarljósi að uppbygging samfélaga sé með sjálfbærum hætti sem felur meðal annars í sér að fjárfestingar og verkefni styðji við sjálfbæra þróun í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og hafi ekki í för með sér neikvæð áhrif á loftslag og umhverfi.

Alþjóðabankinn er meðal stærstu og áhrifamestu alþjóðastofnana á sviði þróunarsamvinnu í heiminum. Hlutverk bankans er að stuðla að efnahagslegri og félagslegri uppbyggingu þróunarlanda. Bankinn starfar með stjórnvöldum hlutaðeigandi ríkja og veitir þeim aðstoð í formi lána, styrkja og ráðgjafar. Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin mynda eitt kjördæmi hjá Alþjóðabankanum og vinna sameiginlega að áherslum á ákveðnum málaefnasviðum. Á árunum 2019–2021 leiðir Ísland kjördæmisstarfið.

Í tengslum við ársfundina eru fimm meginviðburðir opnir fyrir almenning og er hægt nálgast frekari upplýsingar um þá hér.

  • Geir H. Haarde, aðalfulltrúi kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í stjórn Alþjóðabankans - mynd

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

1 Engin fátækt
3. Heilsa og vellíðan
7. Sjálfbær orka
8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum