Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. október 2020 Utanríkisráðuneytið

Ísland í gestgjafahlutverki á haustfundi Global Equality Fund

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, ávarpaði í dag árlegan haustfund Hnattræna jafnréttissjóðsins þar sem mannréttindi hinsegin fólks voru til umræðu. Ísland var í gestgjafahlutverki í ár og bauð til fjarfundarins þar sem um fimmtíu meðlimir og fulltrúar styrktaraðila ásamt starfsliði sjóðsins tóku þátt. 

Hnattræni jafnréttissjóðurinn, (e. Global Equality Fund, GEF), beinir stuðningi sínum að mannréttindum hinsegin fólks. Að honum standa bæði einka- og opinberir aðilar sem eiga það sameiginlegt að vilja leggja sitt af mörkum til þessa málaflokks um heim allan. 
Á fundinum var farið yfir síðustu ársskýrslu sjóðsins og þróun verkefna sem sjóðurinn styður við. Einnig var rætt sérstaklega um áhrif kórónuveirufaraldursins á mannréttindabaráttu hinsegin fólks.

„Í meira en þriðjungi landa heims eru mannréttindi hinsegin fólks virt að vettugi. Við sjáum líka að um allan heim hefur hinsegin fólk þurft að mæta fordómum og ofbeldi í ýmsu formi. Orsakir þess eru margþættar en oft er um að ræða hamlandi löggjöf og neikvæða afstöðu í samfélaginu gagnvart þessum hópi, sem hefur margvísleg áhrif á öryggi milljóna manna um heim allan“ sagði Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri er hann setti fundinn og áréttaði hann jafnframt mikilvægi sjóðsins í þessu samhengi. „Sjóðurinn gegnir mikilvægu hlutverki við að leiða saman líkþenkjandi ríki og einkaaðila sem vilja styðja við þetta málefni og skapar því öflugan vettvang þar sem við getum tekið höndum saman“ bætti hann við.

Ísland gerðist bakhjarl sjóðsins um síðustu áramót þegar undirritaður var samningur til þriggja ára en mann­réttindi og jafn­réttis­mál hafa fengið aukið vægi í utan­ríkis­stefnu Ís­lands á undan­förnum árum. Á síðasta ári sam­þykkti Al­þingi nýja stefnu Ís­lands í þróunar­sam­vinnu fyrir árin 2019-2023 þar sem til­greint er að öll þróunar­sam­vinna eigi að hafa mann­réttindi að leiðar­ljósi. Í kjöl­farið hefur Ís­land fylgst sér­stak­lega grannt með stöðu hin­segin fólks í sam­starfs- og á­herslu­ríkjum í þróunar­sam­vinnu, þ.e. Palestínu, Afgan­istan, Mó­sambík, Úganda og Malaví, þar sem mannréttindum hinsegin fólks er verulega ábótavant. 


  • Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri á fundinum í dag - mynd
  • Ísland í gestgjafahlutverki á haustfundi Global Equality Fund - mynd úr myndasafni númer 2

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum