Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. október 2020 Utanríkisráðuneytið

Þjónustuborð atvinnulífsins og viðskiptavaktin hefja göngu sína

 Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, Hildur Árnadóttir, stjórnarformaður Íslandsstofu, og Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, við undirritunina í dag - myndBIG

Í dag undirrituðu Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, Hildur Árnadóttir, stjórnarformaður Íslandsstofu, og Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, samkomulag utanríkisráðuneytisins og Íslandsstofu um stofnun þjónustuborðs atvinnulífsins.

Þjónustuborðinu er ætlað að vera brú milli atvinnulífs og stjórnvalda þar sem fyrirtæki munu m.a. geta leitað sér upplýsinga um möguleika á stuðningi við atvinnuþróunarverkefni í þróunarlöndum og víðar, þar sem Ísland veitir fjárframlög, og sótt sérþekkingu, stuðning og leiðbeiningar um hvert annað er hægt að leita til að koma hugmyndum í framkvæmd. Þjónustuborðið mun halda utan um þær leiðir sem fyrirtæki hafa til að njóta þjónustu og leiðsagnar hjá utanríkisþjónustunni, Stjórnarráðinu og eftir atvikum öðrum fyrirtækjum sem starfað hafa á svipuðum mörkuðum og stefnan er sett á. Einnig hvernig er farsælast að sækja um styrki til valinna verkefna.

„Um leið og kórónuveirufaraldurinn brast á setti ég stuðning við íslenskt atvinnulíf í algeran forgang. Stefnumótun okkar er nú farin að bera ávöxt með þeim nýmælum sem í dag verður hrint í framkvæmd. Ég bind vonir við að með þjónustuborði atvinnulífsins geti íslensk fyrirtæki látið meira að sér kveða í atvinnustarfsemi í þróunarríkjum og víðar, í samvinnu við heimafólk á hverjum stað,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

„Það er ánægjulegt að sjá tillögum starfshóps um framkvæmd utanríkisstefnu í kjölfar COVID-19 hrint í framkvæmd með svo skjótum hætti. Íslandsstofa lagði á síðasta ári fram stefnumótun fyrir íslenskar útflutningsgreinar. Það má segja að kórónaveirufaraldurinn hafi sannfært okkur enn frekar um gildi hennar. Þjónustuborðið er spennandi viðbót við þjónustuframboð Íslandsstofu og við væntum mikils af samstarfi við framsækin íslensk fyrirtæki í markaðssókn, hvort sem er á rótgrónum eða nýjum mörkuðum,“ segir Hildur Árnadóttir, stjórnarformaður Íslandsstofu.  

Íslandsstofa mun hafa umsjón með rekstri þjónustuborðsins en í baklandi þess verða sérfræðingar utanríkisráðuneytisins um atvinnulíf og þróunarsamvinnu, viðskiptaþjónustu, uppbyggingarsjóðir í Evrópu, þ.m.t. uppbyggingarsjóður EES, auk annarra samstarfssjóða milli stjórnvalda og atvinnulífs sem íslensk fyrirtæki hafa aðgang að, og sérfræðingar annarra ráðuneyta og tengiliðir um fjölþjóðlegar fjármögnunarstofnanir.

Í dag hóf jafnframt sérstök viðskiptavakt utanríkisráðuneytisins formlega göngu sína. Hún er liður í áherslu utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra að styðja við íslenskan útflutning, ekki síst nú á tímum kórónuveirunnar. Viðskiptavaktin er ein af tólf tillögum í skýrslunni Saman á útivelli sem út kom í sumar. Um er að ræða öfluga viðbót við þá viðskiptaþjónustu sem ráðuneytið hefur boðið upp á um árabil og byggist á vel heppnaðri fyrirmynd borgaraþjónustunnar. Viðskiptavaktin verður opin allan sólarhringinn þar sem fulltrúar fyrirtækja geta komist í samband við starfsmann utanríkisþjónustunnar á vakt.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum