Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. október 2020 Dómsmálaráðuneytið

Bætt umgjörð lögbanns gegn fjölmiðlum

Dómsmálaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi um breytingar á lögum um kyrrsetningu og lögbann með það að markmiði að styrkja tjáningarfrelsi með því að bæta umgjörð lögbannsmála á hendur fjölmiðlum. Frumvarpið var lagt fram á síðastliðnu löggjafarþingi en hlaut þá ekki afgreiðslu úr allsherjar- og menntamálanefnd. Er það nú lagt fram aftur í óbreyttri mynd.

Í frumvarpinu er að finna tillögur sem ætlað er að styrkja umgjörð lögbannsmála og hraða málsmeðferðinni eftir því sem kostur er, að gættum réttindum gerðarbeiðanda og gerðarþola við slíka gerð. Við mótun þeirra tillagna sem frumvarpið hefur að geyma hefur verið komið til móts við þessi sjónarmið án þess að stefna í hættu þeirri málsmeðferð sem nú þegar er við lýði við bráðabirgðagerðir samkvæmt gildandi lögum.

Í máli ráðherra kom fram lögbann á fjölmiðlaumfjöllun feli í sér fyrir fram takmörkun á tjáningarfrelsi sem gera verði sérstaklega ríkar kröfur til samkvæmt stjórnarskránni og mannréttindasáttmála Evrópu. Þar reynir á mörk tjáningarfrelsis annars vegar og friðhelgi einkalífs hins vegar, auk þess sem lögbann af þessu tagi geti hamlað eða komið í veg fyrir lýðræðislega umræðu þegar tjáning um málefni sem varðar almenning séu fyrir fram takmörkuð, svo sem í aðdraganda kosninga. Slíkt tjón verði tæpast metið til nánar tiltekinnar fjárhæðar og vandséð hver ætti þá kröfu um greiðslu bóta. Augljóst er hvaða þýðingu fjölmiðar hafi fyrir lýðræðislega umfjöllun og því brýnt að úr lögbannsmálum þeim á hendur sé leyst skjótt og greiðlega.

Sjá nánar: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=151&mnr=16

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum