Hoppa yfir valmynd

Frétt

19. október 2020 Heilbrigðisráðuneytið

COVID 19: Um opnun líkamsræktarstöðva

Handþvottur er mikilvæg sóttvörn - mynd

Ákvæði nýrrar reglugerðar heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum sem heimilar opnun líkamsræktarstöðva að uppfylltum ströngum skilyrðum, byggist á því að jafnræðis og meðalhófs sé gætt. Horft er til þess að sömu skilyrði gildi um íþróttaiðkun og líkamsrækt, þ.e. að iðka megi hvoru tveggja ef regla um 20 manna hámarksfjölda og 2 metra nálægðarmörk er virt.

Heilbrigðisráðuneytið og sóttvarnalæknir funduðu í dag til að fara yfir þau ákvæði sem gilda um íþróttir og líkamsrækt samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra. Í minnisblaði sóttvarnalæknis, dags. 15. október, sem reglugerð um samkomutakmarkanir byggist á, er lagt til að íþróttaiðkun án snertingar verði leyfð að hámarki í 20 manna hópi, þar sem 2 metra reglan er virt, sótthreinsun sinnt og engir áhorfendur viðstaddir. Aftur á móti var lagt til að líkamsræktarstöðvar skyldu lokaðar. Niðurstaða ráðuneytisins var sú að ekki væri stætt á því að banna hreyfingu í líkamsræktarstöðvum þar sem unnt væri að uppfylla sömu skilyrði og gilda um íþróttastarf. Í reglugerðinni er því kveðið á um að líkamsræktarstöðvar megi vera opnar, að því gefnu að þar sé einungis stunduð starfsemi sem rúmast innan þeirra takmarkana sem reglugerðin setur. Ráðuneytið minnir á að öll blöndun milli hópa er óheimil, hvort sem er í tengslum við salernisaðstöðu, búningsaðstöðu, inn- og útganga o.s.frv.

Sóttvarnalæknir vinnur nú að gerð leiðbeininga til heilsuræktar- og íþróttastöðva á grundvelli reglugerðar heilbrigðisráðherra.

Ákvæði reglugerðar um íþrótta- og heilsuræktarstarfsemi sem tekur gildi 20. október

Íþrótta- og heilsuræktarstarfsemi sem krefst nándar, snertingar eða notkunar gólf-, loft- eða veggfasts sameiginlegs búnaðar og stórra tækja, svo sem í tækjasölum heilsuræktarstöðva, er óheimil. Notkun á öðrum sameiginlegum búnaði, svo sem handlóðum, hjólum eða dýnum, er heimil ef um er að ræða skipulagða hóptíma þar sem allir þátttakendur eru skráðir. Búnaður skal ekki fara á milli notenda í sama hóptíma og skal sótthreinsaður fyrir og eftir æfingu. Í húsnæði þar sem slík starfsemi fer fram gildir ákvæði 1. mgr. 3. gr. um fjöldatakmörkun.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum