Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. október 2020 Utanríkisráðuneytið

Guðlaugur Þór ræddi Hoyvíkursamninginn við Jenis av Rana

Guðlaugur Þór Þórðarson og Jenis av Rana á fundinum í dag - myndUtanríkisráðuneytið
Framkvæmd Hoyvíkursamningsins og efnahagsleg áhrif kórónuveirufaraldursins voru efst á baugi á fundi þeirra Guðlaugs Þór Þórðarsonar, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, og Jenis av Rana, utanríkisráðherra Færeyja, í Þórshöfn í dag. 

Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja skipa Hoyvíkurráðið sem kemur reglulega saman til að ræða framkvæmd Hoyvíkursamningsins, fríverslunarsamnings Íslands og Færeyja. Hann felur í sér fulla fríverslun með vörur og þjónustu á milli landanna og er víðtækasti fríverslunarsamningur sem Ísland hefur gert. 
 
Fundurinn í Þórshöfn í dag var jákvæður en sameiginleg afstaða til samningsins er að hann veiti fyrirtækjum og einstaklingum beggja landa veruleg tækifæri til framtíðar. „Hoyvíkursamningurinn er áþreifanleg staðfesting á góðum og nánum samskiptum Íslands og Færeyja. Hann hefur reynst báðum þjóðum vel frá því að hann tók gildi 2006 og það var afar ánægjulegt að koma hingað til Færeyja og sjá það með eigin augum,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson að fundi loknum.
 
Í tengslum við fundinn sóttu þeir Guðlaugur Þór og Jenis av Rana heim Sigert Patursson, bónda og formann færeysku bændasamtakanna, og skoðuðu sláturhúsið og kjötvinnsluna Krás í Hósvík.
 
Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra flutti einnig ræðu á Faroexpo kaupstefnunni sem haldin var í Runavík í dag. Kaupstefnan fer fram á tveggja ára fresti og að þessu sinni undir yfirskriftinni Brexit, tækifæri og áskoranir. Í erindi sínu lagði ráðherra áherslu á náin tengsl Íslands og Bretlands í fortíð, nútíð og framtíð, á sviði viðskipta, menningar og öryggismála. Hann áréttaði meðal annars að mikið væri í húfi fyrir Ísland að tryggja samfellu í samskiptum landanna þrátt fyrir útgöngu Bretlands úr ESB. Samningar um framtíðarsamskipti landanna stæðu yfir og væru langt komnir á mörgum sviðum.
 
Þá tiltók Guðlaugur Þór einnig að útganga Bretlands myndi hafa áhrif á samfélag Atlantshafsþjóða sem bæði Færeyjar og Ísland tilheyra. Bretland yrði nú aftur sjálfstæður aðili að því samfélagi sem gæti orðið til þess að efla og dýpka samstarf ríkja á svæðinu. Slíkt yrði bæði Íslandi og Færeyjum mikilvægt til framtíðar.
 
 
  • Guðlaugur Þór ávarpar FaroExpo-kaupstefnuna - mynd
  • Guðlaugur Þór og Jenis av Rana heimsóttu Sigert Patursson, bónda og formann færeysku bændasamtakanna. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum