Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. nóvember 2020 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bárust 209 gild tilboð um kaup og sölu á tilboðsmarkaði fyrir greiðslumark mjólkur þann 2. nóvember 2020.  Þetta er síðasti markaðurinn á yfirstandandi ári og aðilaskipti greiðslumarks á markaðnum taka gildi frá 1. janúar 2021.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum AFURÐ sem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða þessa fyrsta markaðar nú fyrir.

Við opnun tilboða kom  fram jafnvægisverðið 294 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.

Hámarksverð greiðslumarks samkvæmt reglugerð frá 30. júlí sl. er þrefalt afurðastöðvaverð, nú 294 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.   Eins og sjá má af jafnvægisverðinu tóku tilboð nær undantekningarlaust mið af settu hámarksverði.

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 17.
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 192.
  • Eitt kauptilboð var undir jafnvægisverði.
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 1.948.334 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru      9.218.000 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 1.948.299 lítrar að andvirði 572.799.906 kr.
  • Sérstök úthlutun til nýliða er 5% af sölutilboðum eða 97.399 lítrar.   Fjöldi gildra kauptilboða frá nýliðum voru 21.

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði 294  kr./l. eða lægra selja nú greiðslumark sitt. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í AFURÐ.

 

Línuritið sýnir framboð og eftirspurn eftir greiðslumarki í mjólk (uppsafnað magn) á markaðnum 2. nóvember 2020. Bláa línan sýnir sölutilboð sem bárust, magn í lítrum á x-ás og verð í krónum á y-ás, og rauða línan kauptilboð. Jafnvægisverðið myndast við 294 kr./ltr. sem er jafnframt sett hámarsverð. Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði 294 kr./ltr. eða lægri selja nú greiðslumark sitt. 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum