Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. nóvember 2020 Innviðaráðuneytið

Fórnarlamba umferðarslysa verður minnst með fjölbreyttum hætti

Fórnarlamba umferðarslysa verður minnst með fjölbreyttum hætti - myndLjósmynd: emm.is

Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður sunnudaginn 15. nóvember. Að þessu sinni verður minningardagurinn sniðinn að sérstökum aðstæðum í samfélaginu. Í stað rótgróinnar minningarstundar við þyrlupallinn við Landspítalann verður árvekniátak í samfélaginu um umferðaröryggi dagana 13.-15. nóvember. 

Tilgangurinn með deginum er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni en ekki hvað síst að þakka þeim viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun.

Minningarviðburðir verða haldnir um land allt og fjallað verður um mikilvæg málefni tengd umferðaröryggi í fjölmiðlum, myndböndum og umræðum á samfélagsmiðlum

Einkennislag dagsins verður lag KK, When I think of angels, í flutningi hans og Ellenar sem samið var til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðum á minningardaginn sjálfan kl. 14:00.

Að kvöldi minningardagsins kl. 19:00 munu félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörgu og fleiri viðbragðsaðilar standa fyrir táknrænum minningarathöfnum um allt land í beinni vefútsendingu til að minnast fórnarlamba umferðarslysa. Kveikt verður á kertum hringinn í kringum landið af þessu tilefni.

Rík hefð er fyrir því á minningardeginum að færa starfsstéttum, sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður, þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf.

Alþjóðlegur minningardagur

Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu. Um það bil 4.000 einstaklingar láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum. 

Frá því að fyrsta banaslysið var skráð hér á landi 25. ágúst 1915 hafa 1585 manns látist í umferðinni á Íslandi (fram að 1. nóvember 2020). Enn fleiri slasast alvarlega, takast á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum. 

Segja má að allt samfélagið deili með sér alvarlegum afleiðingum umferðarslysa. Vart er til sá einstaklingur sem þekkir ekki einhvern sem lent hefur í alvarlegu slysi í umferðinni. Það er því til mikils að vinna að koma í veg fyrir slysin og megi þessi dagur efla vitund okkar fyrir því og ábyrgð. 

  • Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa 2020 - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum