Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. nóvember 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ríkisstjórnin styður við byggingu nýs Kvennaathvarfs

Árni Matthíasson, varaformaður stjórnar Samtaka um kvennaathvarf, Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf  og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri skoða framkvæmdir við nýtt áfangaheimi Samtaka um kvennaathvarf.  - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, skrifaði í dag undir samning við Samtök um kvennaathvarf. Í samningnum leggur ríkisstjórn Íslands til 100 milljónir króna sem ætlað er að styðja við byggingu nýs neyðarathvarfs í Reykjavík á vegum Samtaka um kvennaathvarf og styrkja þjónustu athvarfsins vegna áhrifa kórónaveirunnar. Fjárveitingin er hluti af sérstöku fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar. Reykjavíkurborg úthlutar lóð til verkefnisins en við sama tilefni undirritaði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri lóðarvilyrði undir hið nýja neyðarathvarf.

Fjármununum verður varið í viðgerðir og endurbætur á núverandi húsnæði Kvennaathvarfsins, framkvæmdir og byggingu nýs áfangaheimilis, auk hönnunar á nýju neyðarathvarfi ásamt stuðningi til kaupa á lóð undir neyðarathvarfið.

Samtök um kvennaathvarf munu opna áfangaheimili sumarið 2021 sem er ætlað að verða 2. stigs úrræði fyrir konur og börn sem hafa dvalið í athvarfinu og eru tilbúin til að hefja nýtt líf á nýjum stað.  Um er að ræða 18 íbúða hús sem nú er í byggingu með stuðningi Reykjavíkurborgar, ríkisins og almennings.  Húsið er hannað samkvæmt reglum um aðgengi en til að tryggja að húsið uppfylli skilyrði um algilda hönnun þarf að fara í ákveðnar breytingar, sem nú verður ráðist í. 

Mikil þörf er á að bæta aðstöðu Kvennaathvarfsins til að það geti sinnt hlutverki sínu enn betur. Nýtt neyðarathvarf sem Samtök um kvennaathvarf munu reisa verður fyrsta sérhæfða húsnæðið sem byggt er undir neyðarathvarf á Íslandi. Með tilkomu þess munu Samtök um kvennaathvarf  tvöfalda húsnæði neyðarathvarfsins og  verður fagleg aðstoð mun aðgengilegri fyrir þær konur og börn þeirra sem þurfa á stuðningi og ráðgjöf að halda vegna ofbeldis.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra: „Það er afar ánægjulegt að styðja við hönnun og byggingu á nýju neyðarathvarfi, því fyrsta sem er sérstaklega hannað sem slíkt og á eftir að vera mikil breyting til hins betra og nýtast vel í því mikilvæga starfi sem Samtök um kvennaathvarf sinna í þágu kvenna og barna sem búa við ofbeldi á sínum heimilum. Þá mun nýtt áfangaheimili fyrir konur og börn þeirra vera stórt skref og auðvelda þeim að hefja nýtt líf eftir dvöl í neyðarathvarfinu.“

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri: „Það er ótrúlega mikilvægt að þessi viðkvæma þjónusta hafi góða aðstöðu og þak yfir höfuð, bæði þessar 18 íbúðir hér en líka neyðarathvarfið sem er í undirbúningi. Borgin hefur átt í áratugalöngu og nánu samstarfi við Kvennaathvarfið og fólkinu sem þar vinnur verður seint fullþakkað fyrir sín mikilvægu störf.“ 

Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf: „Það er gleðidagur í Kvennaathvarfinu. Þó er varla hægt að segja að draumur sé að verða að veruleika því við höfum aldrei beinlínis leyft okkur að eiga draum um sérhannað húsnæði til að reka athvarfið í. Við erum sennilega ekki búnar að átta okkur fyllilega á því hvað þetta býður upp á marga möguleika en horfum með gleði til þess að taka á móti konum og börnum í húsi sem byggt var sérstaklega fyrir þau og er aðgengilegt fyrir alla.  Upp úr stendur þakklæti í garð þeirra sem hafa komið okkur á þennan stað í verkefninu og fyrirfram þakklæti í garð þeirra fjölmörgu sem við vitum að eiga eftir að hjálpa okkur við að koma upp nýju Kvennaathvarfi."

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum