Hoppa yfir valmynd

Frétt

17. nóvember 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Frumvarp um fæðingar- og foreldraorlof samþykkt í ríkisstjórn

Ríkisstjórnin hefur samþykkt frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra um fæðingar- og foreldraorlof.  - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, kynnti frumvarp um fæðingar- og foreldraorlof fyrir ríkisstjórn i morgun og var það samþykkt. Ráðherra setti drög að fumvarpinu  í samráðsgátt stjórnvalda og tekur frumvarpið mið af athugasemdum sem þar bárust. Frumvarpið er lagt fram í tilefni þess að í ár eru tuttugu ár liðin frá gildistöku laga um fæðingar og foreldraorlof, en ráðherra skipaði nefnd í ágúst 2019, sem hafði það hlutverk að endurskoða lögin í heild sinni. Alls er gert ráð fyrir að 19,1 milljörðum króna verði varið í fæðingarorlof á árinu 2021 sem er tæplega tvöföldun á þeim fjármunum sem fóru til málaflokksins árið 2017, á verðlagi hvors árs.

Fjöldi umsagna barst í gegnum samráðsgátt stjórnvalda og eru nokkrar breytingar á frumvarpinu frá því að það fór í gáttina. Helstu breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu er lenging fæðingarorlofs í 12 mánuði vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá 1. janúar 2021. Sjálfstæður réttur hvors foreldris um sig verður sex mánuðir en foreldrum verður heimilt að framselja einn mánuð sín á milli, og því getur annað foreldrið tekið fæðingarorlof í sjö mánuði en hitt í fimm. Þá eru lagðar til frekari heimildir til yfirfærslu réttinda á milli foreldra þegar annað foreldri getur ekki af nánar tilgreindum ástæðum nýtt sinn rétt til fæðingarorlofs. Þær heimildir eru:

  • Þegar ekki hefur reynst mögulegt að feðra barn samkvæmt barnalögum.
  • Þegar foreldri er gert að sæta nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili samkvæmt lögum um nálgunarbann og/eða brottvísun.
  • Þegar annað foreldrið hefur ekki rétt til töku fæðingarorlofs/fæðingarstyrks hérlendis né heldur sjálfstæðan rétt til töku orlofs í sínu heimaríki.
  • Þegar umgengni annars foreldris við barnið er engin eða hún verulega takmörkuð, svo sem undir eftirliti einvörðungu, á grundvelli niðurstöðu lögmælts stjórnvalds eða dómstóla. Forsjárforeldri þarf að sækja um þessa tilfærslu réttinda til Vinnumálastofnunar sem tekur ákvörðun í málinu.

Þá er lagt til að barnshafandi foreldri verði veittur sérstakur styrkur vegna skerts aðgengis að fæðingarþjónustu í þeim tilvikum þegar barnshafandi foreldri þarf að mati sérfræðilæknis að dvelja fjarri heimili sínu, fyrir áætlaðan fæðingardag, í tengslum við nauðsynlega þjónustu vegna fæðingar barnsins.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra: „Í ár eru tuttugu ár liðin frá gildistöku laga um fæðingar- og foreldraorlof, sem voru gríðarlega framsækin á þeim tíma en það var kominn tími til að endurskoða þau og færa til nútímans. Þetta frumvarp er stórt skref í þá átt og við viljum að Ísland sé góður staður til þess að eignast og ala upp börn, og með þessu frumvarpi erum við að auka enn á réttindi foreldra til samvista með börnunum sínum á fyrstu mánuðunum ævi þeirra.“

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum