Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. nóvember 2020 Innviðaráðuneytið

Greinargerð um sóknaráætlanir landshluta 2015-2019

Sóknaráætlanir landshluta - mynd

Greinargerð  um sóknaráætlanir landshluta fyrir tímabilið 2015-2019 hefur verið gefin út. Í henni kemur m.a. fram að rúmum 5 milljörðum króna var varið til sóknaráætlana landshluta á tímabilinu.

Unnið var að 283 áhersluverkefnum um land allt á tímabilinu og framlag til þeirra nam 1,6 ma.kr. Styrkir úr uppbyggingarsjóði námu 2,3 ma.kr. á tímabilinu og voru 2.966 verkefni styrkt, en rúmar fimm þúsund umsóknir bárust. 

Sóknaráætlanir landshluta eru samstarfsverkefni ráðuneyta og sveitarfélaga. Markmiðið er að færa aukin völd og ábyrgð til landshlutanna á ráðstöfun fjármuna frá ríkisvaldinu til verkefna á sviði byggðamála og samfélagsþróunar. Samráð og samvinna ríkis og sveitarfélaga fer fyrst og fremst fram í gegnum stýrihóp Stjórnarráðsins um byggðamál og landshlutasamtök sveitar¬félaga. Landshlutasamtök sveitarfélaga skipa samráðsvettvang í hverjum landshluta og skilgreina hlutverk og verkefni hans. Samráðsvettvangurinn hefur beina aðkomu að gerð sóknaráætlunar. 

Samkvæmt samningum um sóknaráætlanir renna framlög ríkisins annars vegar til áhersluverkefna og hins vegar til uppbyggingarsjóða. Uppbyggingarsjóðir eru samkeppnissjóðir. Áhersluverkefni eru samningsbundin verkefni sem hafa beina skírskotun til sóknaráætlunar landshlutans og áherslna samráðsvettvangs og þar er ekki gerð krafa um mótframlag. Samningurinn við höfuðborgarsvæðið er frábrugðinn samningunum við aðra landshluta, þar er eingöngu veitt fjármagn til framkvæmdar áhersluverkefna en ekki til uppbyggingarsjóðs.

Nýtt fimm ára tímabil sóknaráætlana landshluta hófst árið 2020 og stendur út árið 2024. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum