Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. desember 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Drög að breytingu á reglugerð um stjórnvaldssektir vegna brota á efnalögum

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að breytingu á reglugerð um stjórnvaldssektir fyrir brot á efnalögum, sem sett hafa verið til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda.

Breytingin er í kjölfar gildistöku laga um breytingu á efnalögum þar sem bættust við heimildir til álagningu stjórnvaldssekta vegna þrenns konar brota á lögunum.

Um er að ræða brot gegn skyldum eldsneytisbirgja um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, brot gegn ákvæðum laganna um kröfu til að hafa vottun til að annast verkefni í tengslum við F-gös og gegn ákvæðum um markaðssetningu flúoraðra gróðurhúsalofttegunda og ákvæðum um magn flúoraðra gróðurhúsalofttegunda. Er í  reglugerðardrögunum kveðið á um fjárhæð sekta fyrir umrædd brot á ákvæðum efnalaga.

Umsögnum um drögin að reglugerðinni skal skilað í samráðsgátt stjórnvalda og er frestur til þess til 15. desember næstkomandi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum