Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. desember 2020 Dómsmálaráðuneytið

Stafræn útgáfa búsforræðisvottorðs

Dómsmálaráðuneytið vinnur að því ásamt Stafrænu Íslandi að efla rafræna þjónustu til hagræðis fyrir almenning. Í dag bætti Dómstólasýslan við eyðublaði einnar tegundar búsforræðisvottorða.
Dómstólasýslan hefur unnið með Dómsmálaráðuneytinu og Stafrænu Íslandi að stafrænni útgáfu einnar tegundar búsforræðisvottorða. Búsforræðisvottorðið – vottorð um að bú einstaklings eða fyrirtækis sé ekki til gjaldþrotaskiptameðferðar er nú hægt að nálgast rafrænt í gegnum Ísland.is. Þar geta einstaklingar og fyrirtæki gengið frá umsókn, greitt fyrir og fengið vottorðið sent í pósthólfið sitt á Ísland.is með einföldum hætti. Ljóst er að breytingin felur í sér mikið hagræði fyrir umsækjendur vottorðsins og starfsmenn dómstólanna sem hafa haft umsjón með verkefninu fram til þessa. Sjá vef Dómstólasýslunnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum