Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. desember 2020 Utanríkisráðuneytið

Loftferðasamningur við Breta undirritaður

Guðlaugur Þór Þórðarson undirritar nýja loftferðasamninginn fyrir Íslands hönd - myndUtanríkisráðuneytið

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, undirritaði í dag fyrir Íslands hönd loftferðasamning milli Íslands og Bretlands. Flugsamgöngur hafa því verið tryggðar á milli ríkjanna eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. 

Robert Courts, ráðherra flug- og siglingamála og almannaöryggis í bresku ríkisstjórninni, undirritaði samninginn fyrir hönd Bretlands. Hann er gerður vegna útgöngu Bretlands úr ESB en við lok aðlögunartímabilsins 31. desember 2020 munu flugsamgöngur á milli Íslands og Bretlands ekki lengur byggja á EES-samningnum. Þetta er fyrsti langtímasamningurinn sem Ísland gerir við Bretland vegna útgöngunnar úr ESB en umfangsmiklar viðræður um framtíðarsamband ríkjanna á fjölmörgum sviðum standa nú yfir. 

„Fluggeirinn skiptir íslenskt efnahagslíf höfuðmáli og í því sambandi gegna flugsamgöngur við Bretland lykilhlutverki, bæði hvað varðar vöruflutninga og ferðalög fólks. Undirritunin í dag markar því tímamót því þar með helst loftbrúin á milli ríkjanna áfram opin og greið,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. 

Þessi loftferðasamningur veitir sömu tvíhliða flugréttindi og bæði löndin hafa í dag með aðild þeirra að Sameiginlega evrópska flugsvæðinu (e. European Common Aviation Area).

„Það hefur verið okkur kappsmál að tryggja að flugsamgöngur við þennan mikilvægasta útflutningsmarkað okkar í Evrópu geti haldið áfram án nokkurra hnökra þrátt fyrir útgönguna. Þótt mikill samdráttur hafi orðið í flugsamgöngum vegna heimsfaraldursins eiga þær eftir að komast í eðlilegt horf þegar farsóttin gengur niður,“ segir Guðlaugur Þór.

Fríverslunarviðræður Íslands og hinna EFTA-ríkjanna innan EES, Noregs og Liechtenstein, við Bretland standa nú yfir. Þrátt fyrir kórónuveirufaraldurinn hafa viðræður gengið vel og eru langt komnar. Í síðustu viku undirrituðu bresk og íslensk stjórnvöld bráðabirgðafríverslunarsamning sem tryggir óbreytt tollkjör vegna vöruviðskipta við Bretland. 

Þar sem samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) mun ekki gilda lengur um Bretland frá og með 1. janúar 2021 þurfa Íslendingar að huga að nokkrum atriðum í því sambandi, sérstaklega þeir sem búa á Bretlandi eða hyggjast flytja þangað á næstunni og þeir sem stunda viðskipti við Bretland eða eiga þar annara hagsmuna að gæta. Utanríkisráðuneytið hefur tekið saman gátlista af því tilefni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum