Hoppa yfir valmynd

Frétt

28. desember 2020 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Nýr þjónustusamningur við Ríkisútvarpið


Aukin áhersla á fræðsluhlutverk Ríkisútvarpsins og rækt við íslenska tungu er meðal lykilatriða í nýjum þjónustusamningi mennta- og menningarmálaráðherra við Ríkisútvarpið ohf., sem undirritaður var í dag. Lögð verður áhersla á þjónustu við börn og ungmenni, m.a. til að efla lýðræðisvitund, auka miðla- og upplýsingalæsi og hvetja til þátttöku í dagskrárgerð og öðru skapandi starfi. Ríkisútvarpið mun verja 12% af innheimtu útvarpsgjaldi til meðframleiðslu og kaupa á íslensku efni af sjálfstæðum framleiðendum, áhersla verður lögð á varðveislu og miðlun efnis úr safni Ríkisútvarpsins, þjónustu við eldri borgara og þátttöku í þróun máltæknilausna, þar sem markmiðið er að íslenska verði nothæf og nýtt í tölvum, tækjum og sjálfvirkum lausnum, t.d. textun á töluðu máli.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra:
„Ríkisútvarpið gegnir margþættu menningar- og félagslegu hlutverki, sem það hefur sinnt með sóma í 90 ár. Sérstök áhersla á fræðslu og menntun er mjög í takt við þá áherslu sem verið hefur áberandi í dagskrá þess, til að mynda þegar skólastarf var verulega takmarkað vegna COVID-19. Gerð fræðsluefnis um íslenska tungu er sérstakt fagnaðarefni, sem og efni um tækni og vísindi.“

Í samningnum eru skýrð ýmis atriði sem óljósari voru í fyrri þjónustusamningum, t.d. skilgreining á sjálfstæðum framleiðendum, réttur Ríkisútvarpsins til eignarhlutar í samstarfsverkefnum í samræmi við fjárframlög og greiðslur til listamanna í samstarfsverkefnum. Annars skal við framkvæmd markmiða í þjónustusamningi horft til framboðs á efni og áherslna í dagskrá annarra fjölmiðla og gætt að samkeppnissjónarmiðum, þar sem RÚV sinnir skyldum sem aðrir fjölmiðlar uppfylla ekki á markaðslegum forsendum.

Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri:
„Við erum meðvituð um okkar skyldur gagnvart almenningi og þá sérstöðu sem við njótum. Ríkisútvarpið mun áfram sinna sínum meginhlutverkum af metnaði og í þessum þjónustusamningi eru lagðar línur sem eru í góðum takti við væntingar og óskir fólksins í landinu og stefnu Ríkisútvarpsins. Í samningnum er lagður góður grunnur undir þá vinnu sem er framundan á næsta ári við stefnumótun til næstu ára. Við hlökkum svo sannarlega til að halda áfram að fræða, upplýsa og skemmta fólki eins og Ríkisútvarpið hefur gert í 90 ár.“

Samninginn má lesa hér. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum