Hoppa yfir valmynd

Frétt

29. desember 2020 Heilbrigðisráðuneytið

Bólusetning hafin við COVID-19

Þorleifur Hauksson fær bólusetningu við COVID-19 fyrstur íbúa á hjúkrunarheimili - myndMynd: Kristín Sigurðardóttir

Fjórir starfsmenn heilbrigðisþjónustu voru bólusettir við COVID-19 kl. 9.00 í morgun og voru þar með fyrstir allra til að hljóta bólusetningu hér á landi. Klukkan 10.00 hófst bólusetning á hjúkrunarheimilum. Þorleifur Hauksson var fyrstur íbúa á hjúkrunarheimili til að fá bólusetningu en hann býr á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð í Reykjavík. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fylgdust með bólusetningu Þorleifs, ásamt starfsfólki Seljahlíðar og fjölmiðlafólki og var tímamótunum vel fagnað af Þorleifi og öðrum viðstöddum.

Heilbrigðisstarfsfólkið sem var bólusett fyrst allra kl. 9.00 í morgun voru þau Krist­ina El­izondo, sjúkra­liði á gjör­gæslu­deild, Krist­ín Gunn­ars­dótt­ir, hjúkr­un­ar­fræðing­ur á gjör­gæslu­deild, Elías Eyþórs­son, sér­náms­lækn­ir í lyflækn­ing­um, og Thelma Guðrún Jóns­dótt­ir, aðstoðarmaður á bráðamót­töku.

Tíuþúsund skammtar af bóluefni Pfizer komu til landsins í gær. Bólusetja þarf hvern og einn tvisvar sinnum og dugir efnið því fyrir 5.000 manns. Flutningar bóluefnisins út um land hófust í morgun, bólusetning framlínustarfsfólks á Landspítala er hafin og eftir hádegi í dag verður framlínustarfsfólk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins bólusett.

 

 

  • Bólusetning hafin við COVID-19 - mynd úr myndasafni númer 1
  • Bólusetning hafin við COVID-19 - mynd úr myndasafni númer 2
  • Bólusetning hafin við COVID-19 - mynd úr myndasafni númer 3
  • Upphaf bólusetningar gegn COVID-19 29. desember 2020 - mynd
  • Fyrsta  bólusetningin við COVID-19 á Íslandi - framlínufólk í heilbrigðisþjónustu - mynd
  • Bólusetning hafin við COVID-19 - mynd úr myndasafni númer 6

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum